Eimreiðin - 01.04.1974, Síða 52
ÉIMREIÐlN
DR. PER G. ANDREEN
SAGNFRÆÐINGUR:
STJÖRNUN IÐNVÆDDS ÞJÖÐFELAGS:
Mannhyggja
eða múghyggja?
Áður fyrr vissu allir áhugamenn um hugmyndafræði, livað
við var átt með orðunum íhaldsstefna (konservatism) og rót-
tækni (radikalism). Andúð á hefðum og trú á framfarir voru
dæmigerð um róttækni. Einkenni íhaldssemi var, að hafnað var
framfarabjartsýni og lögð áherzla á menningararf, sem varð-
veita þyrfti í mynd ábyrgðartilfinningar hvers og eins. Þessar
skilgreiningar, sem enn eiga við, jafnt rökfræðilega sem sögu-
lega, virðast úreltar í Svíþjóð. Liggja verður milli hluta, hver
ástæðan er, en minna má á hina lieiftarlegu misnotkun orðsins
íhaldssemi, sem fram kemur í fjölmiðlum.
Upphafið var, að franska OAS-lireyfingin var talin íhalds-
söm í sjónvarpinu 1960. Síðan hafa alls konar einveldi og ein-
ræðisherrar notið sama lieiðurs, ráðlierrar i herforingjastjórn-
um rómönsku Ameríku og á Grikldandi og ofstækisfullir Stal-
inistar i Ráðstjórnarrikjunum. Ef hér væri staður og stund,
144