Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1974, Síða 59

Eimreiðin - 01.04.1974, Síða 59
EIMREIÐIN sér staðreyndir. Yið slíkar aðstæður er marxisminn afkasta- mikið kerfi til áróðurs. Aðalhugtökin eru að sjálfsögðu stéttabarátta og bylting. Með stéttavitund er áll við, að menn skilji hið eina rétta, þeir til- heyri her, sem mun og verður að sigra og að þeir séu í hóp góðra félaga. Ekki er annars krafizt lil að fullnægja þessu en að menn læri nokkrar einfaldar reglur og slagorð. Auðvitað hefur þetta í för með sér, að menn verða að hætta að hugsa sjálfstætt. E. t. v. eru menn aðeins fegnir að losna við óþæg- indin, sem stafa af tilraunum í átt til frjálsrar skoðanamynd- unar. Það er dásamlegt að fyllast sigurvissu og samkennd, sem stéttahatrið kyndir undir. Svo finnst mönnum þeir vera góðir og réttsýnir, því að byltingin bindur enda á arðránið og visar veginn að þúsundárarikinu. Það er leiðtogum mikilvægt að styðjast við fastskorðað kenn- ingakerfi við ögun og framkvæmdir, — kenningakerfi sem bæði skjallar lýðinn og bindur hann á klafa. Þó er jafnmikilvægt, að þessi liugmyndafræði getur leitt til einræðis. Hvað merkir það að standa i fararbroddi hreyfingar, sem leiðir söguna að hin- um fyrirfram ákveðna tilgangi, liinni miklu bvltingu? Ljóst er, að byltingarforinginn og félagar hans í byltingarklíkunni eru síður en svo einhverjir græningjar. Það er réttur þeirra og skylda að bregðast fljótt við og af alvöru, jafnvel ómannúð- lega, ef svo er krafizt. Sjálfur var Marx þegar á unga aldri viss um þetta. Það var einungis ein aðferð til við ,,að stytta dauða- krampa hinnar gömlu þjóðfélagsskipunar og blóðugar fæðing- arhríðar hins nýja“, sagði Marx i bréfi haustið 1818, „en það er byltingarofbeldið.“ Það voru slik orð Marxs, sem Lenin notaði, þegar á þurfti að halda að auka kröfur um algera hlýðni og nauðsyn bar til að drepa niður alla óhlýðni með hörku. Lenín, sem leit á sig sem þjóðarviljann holdi klæddan, hafði af því litlar áhyggjnr, að bolsévikar fengu aðeins 25% atkvæða við kosningar til þjóð- þingsins, þrátt fyrir ógnanir og tálbeitur. Hann lét þingið rélt tæplega koma saman, hæddi það og rak þingmenn á dyr með lijálp lettneskra málaliða. Þetta var sigur múghyggjunnar, og þcim sigri fylgdi eitthvert mesta blóðbað sögunnar. Þúsundára- ríkið, hið stéttlausa þjóðfélag, er goðsögn. Það, sem raunveru- lega býr að baki marxísk-lenínískum byltingarkreddum, cr einræði, ldíkuveldi og múgmenning, sem stej'pir alla í sama m ót.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.