Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Blaðsíða 39
AÐFERÐ
SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR,
KRISTJANA BLONDAL
Þátttakendur
Unglingar í öllum 9. bekkjum grunnskóla Reykjavíkur vorið 1994 tóku þátt í þessari
rannsókn. Ári síðar var sömu nemendum, þá í 10. bekk, fylgt eftir.
Skólaárið 1993-1994 voru 1430 nemendur skráðir í 9. bekk í almennum grunn-
skóla í Reykjavík. Vorið 1994 voru þátttakendur í rannsókninni 1295, 636 piltar
(49%) og 659 stúlkur (51%). Svarhlutfall var því 91%. Þess skal getið að grennslast
var fyrir um þá sem voru fjarverandi og fengust oftast þau svör að forföll hefðu
verið tilkynnt vegna veikinda. Engu að síður má gera ráð fyrir einhverjum forföll-
um þeirra sem eru í áhættuhópi vegna áfengisneyslu. Vekja verður þó athygli á háu
svarhlutfalli. Vorið 1995 náðist í 1103 unglinga af þeim sem tóku þátt í rannsókn-
inni árið áður, eða 85% þeirra. Svarhlutfall síðara árið var því 77% af þeim sem
skráðir voru í 9. bekk árið áður. Af þeim voru 536 piltar (49%) og 567 stúlkur (51%).
Við framsetningu á niðurstöðum rannsóknarinnar hér á eftir er vísað til aldurshóps
en ekki bekkjar; talað er um 14 ára unglinga þegar þeir eru í 9. bekk og 15 ára í 10.
bekk.
Framkvæmd
Spurningalisti um neyslu ýmissa vímuefna, þ.á.m. áfengis, viðhorf til áfengisneyslu
og ástæður fyrir því að drekka eða ekki var lagður fyrir unglingana á skólatíma.
Könnunin fór fram í fyrra skiptið í mars 1994 en síðan aftur í janúar 1995.
Mælitæki
Spurningalistinn um áfengisneyslu unglinga byggir á kvarða sem notaður er í
samvinnuverkefni Evrópulanda en við hönnun hans hefur í ríkum mæli verið sótt í
smiðju Bandaríkjamanna (Þóroddur Bjarnason 1994).
Stéttarstaða var metin með tilliti til starfs og menntunar bæði móður og föður.
Notaður var sexskiptur stéttakvarði sem byggir á kvarða Hollingshead (1975).
Þegar munur kom fram á stéttarstöðu móður og föður var tekið mið af hærri flokki
samkvæmt kvarðanum.
Unglingamir voru spurðir hjá hverjum þeir byggju. Gefnir voru upp sjö kostir
við spurningu um fjölskyldugerð: bý hjá 1) móður og föður, 2) móður og sambýlis-
manni, 3) föður og sambýliskonu, 4) móður, 5) föður, 6) á eigin vegum eða 7) annað
fyrirkomulag. Enginn bjó á eigin vegum og 22 unglingar merktu við annað fjöl-
skylduform, s.s. að þeir byggju hjá ömmu og afa. Til einföldunar var þeim sleppt í
útreikningum á áhrifum fjölskyldugerðar enda ekki hægt að líta á þessa ein-
staklinga sem einlitan hóp þar sem fjölskylduform innan þessa flokks eru ólík.
NIÐURSTÖÐUR
f þessum kafla verður fyrst gerð grein fyrir niðurstöðum um áfengisneyslu
unglinga. í framhaldi af því verður greint frá helstu ástæðum unglinga fyrir því að
drekka eða ekki og viðhorfum þeirra til áfengisneyslu.
37