Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Page 50
ÁFENGISNEYSLA REYKVÍSKRA UNGUNGA
Viöhorftil áhættu samfara áfetigisneyslu
Unglingamir voru spurðir hve mikla áhættu þeir teldu fólk taka með því að a) prófa
að drekka, b) drekka öðru hverju, og c) verða drukkið einu sinni í viku. Eins og sjá
má í Töflu 10 virðist við fyrstu sýn ekki mikil viðhorfabreyting á milli ára. Þannig
telja flestir unglinganna bæði árin að fólk taki litla áhættu með því að prófa að
drekka (engin áhætta eða nokkur áhætta: 14 ára 76%; 15 ára 79%). Og bæði árin telja
flestir unglinganna að fólk taki töluverða eða mikla áhættu með því að verða
drukkið einu sinni í viku (14 ára 85%; 15 ára 82%). Þó má sjá að hlutfallslega fleiri
15 ára unglingar en þegar þeir voru 14 ára töldu enga áhættu felast í því að fólk prófi
að drekka (8% munur +/-3,5, p<0,05). Jafnframt telja færri þeirra fólk taka ntikla
áhættu með því að verða drukkið einu sinni í viku (8% munur +/-4,0, p<0,05).
Afstaðan til áhættu samfara áfengisneyslu linast því aðeins á milli ára.
Tafla 10
Mat á áhættu við áfengisneyslu
Hversu mikla áhættu heldur þú að fólk taki með því að ...
Tölu-
Enga Nokkra verða Mikla Samtals Fjöldi
% % o/ /o % o/ /o svara
prófa að drekka áfengi
14 ára 22 54 16 8 100 1282
15 ára 30 49 14 7 100 1095
drekka áfengi öðru hverju
14 ára 12 46 31 11 100 1279
15 ára 16 49 26 9 100 1099
verða drukkið einu sinni í viku
14 ára 3 12 33 52 100 1282
15 ára 4 14 38 44 100 1098
Fjöldi þátttakenda 1994: N=1295; 1995: N=1103.
Tengsl áfengisneyslu unglingsins við viðhorf hans og ástæður
Unglingunum var skipt í þrjá hópa eftir áfengisneyslu. í fyrsta lagi voru þeir
unglingar sem aldrei höfðu drukkið 15 ára þannig að þeir hefðu fundið á sér (422
einstaklingar eða 40%), í öðru lagi þeir sem höfðu fundið á sér þegar seinni
könnimin fór fram en ekki þegar sú fyrri fór fram (154 eða 15%) og í þriðja lagi þeir
sem höfðu fundið á sér þegar fyrri könnunin fór fram (468 eða 45%). Það má því
48