Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Qupperneq 55

Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Qupperneq 55
SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR, KRISTJANA BLÖNDAL breyst á þessum tíma. Árið 1976 sögðust um 69% 14 ára unglinga hafa drukkið áfengi samanborið við 66% í þessari rannsókn. Þetta kemur nokkuð á óvart í ljósi þeirrar umræðu að áfengisneysla á meðal unglinga verði sífellt almennari. Á átt- unda áratugnum varð þó mikil aukning á drykkju unglinga (Hildigunnur Ólafs- dóttir 1982) en spurning er hvort hún hafi staðið nokkuð í stað síðan. Nýlegar kannanir benda til þess að um helmingur 14 ára unglinga hafi neytt áfengis einu sinni eða oftar (Einar Gylfi Jónsson 1993, Guðrún R. Briem 1987). Sem dæmi má taka að niðurstöður rannsóknar sem gerð var hér á landi árið 1986 (Guðrún R. Briem 1987) leiddu í ljós að af þeim 15 ára unglingum sem neyttu áfeng- is hafði 11% prófað að drekka í fyrsta sinn 12 ára eða yngri. I annarri rannsókn frá 1989 (Ása Guðmundsdóttir 1993) kom fram að 11% 13 ára unglinga höfðu einhvern tímann neytt áfengis og 41% 14 ára unglinga. Þegar hugað var að upphafsaldri áfengisneyslu unglinganna í þessari rannsókn kom í ljós að um 24% þeirra sögðust hafa drukkið í fyrsta sinn 12 ára eða yngri, 43% þeirra 13 ára eða yngri en um 66% þeirra 14 ára og yngri. Þar sem spurningarnar sem lagðar voru fyrir unglingana voru af sama toga í þessum rannsóknum vaknar sú spurning hvort upphafsneysla áfengis sé enn að færast í yngri aldurshópa. Þessi aukning gæti þó stafað m.a. af því að breytingar hafa orðið á neyslumynstri íslendinga. Neysla á léttu víni og bjór hefur færst í vöxt og algengara er að vín sé haft um hönd inni á heimilunum, t.d. með mat (Ása Guðmundsdóttir 1993). Um leið gæti verið að sjálfsagðara þætti að unglingar fengju að dreypa á víni sem gæti þá skýrt að hluta að þeir eru yngri nú þegar þeir smakka vín í fyrsta sinn en áður. Spurningar sem vakna eru m.a. þær hvort þetta geti flýtt fyrir því að unglingar hefji áfengisneyslu og hvort unglingar í yngri aldurshópunum sem drekka illa séu fleiri nú en áður. Af framansögðu má ljóst vera að mikil breidd er í áfengisneyslu unglinga þar sem aðgreina má nokkra neysluhópa, þ.e. þá sem aldrei hafa prófað áfengi, þá sem hafa rétt smakkað áfengi, þá sem eru að byrja að drekka og hafa fundið á sér og þá sem drekka reglulega. Ekki er ólíklegt að í forvarnarstarfi þurfi að taka tillit til allra þessara hópa. Einnig er mikilvægt að gera sér grein fyrir hvaða unglingar það eru sem eru í sérstökum áhættuhópi hvað snertir áfengisneyslu. Félagslegt umhverfi Áfengisneysla unglinga tengdist ekki stéttarstöðu foreldra þeirra. Þannig voru böm faglærðs verkafólks jafn líkleg til að neyta áfengis og börn háskólamenntaðs fólks. Ekki kom á óvart að þeir unglingar, sem áttu nána vini sem drukku oft, neyttu áfengis oftar en aðrir. VinahópurimT skiptir greinilega miklu. Efalaust þrýsta vinir oft á unglinga til að drekka. Einnig er líklegt að unglingar, hvort sem þeir drekka eða ekki, velji sér vinahóp með hliðsjón af svipaðri afstöðu til áfengisneyslu, en algengt er að vinahópurinn sé endurnýjaður á unglingsárum (Youniss 1980). Aftur á móti virtist ekki vera samband milli drykkju unglinga og foreldra. Við fyrstu sýn virðist hér skýrt dæmi um hve sterk félagsmótunaráhrif vinahópurinn á unglingsárum hefur á áfengisneyslu unglinga í samanburði við foreldra. í ljósi þess að unglingamir voru spurðir um drykkju foreldra sinna verður þó að setja nokkra varnagla. Unglingarnir gætu verið kunnugri því hversu oft vinir þeirra drekka en 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.