Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 63
GERÐUR G. ÓSKARSDÓTTIR
hlutur skólans eigi að vera, hvaða þætti starfsmenntunar sé t.d. áætlað að rækja í
skólum og hvað eigi að fara fram á vinnustað, og hvort þjálfun á vinnustað skuli
vera hluti undirbúningsmenntunar eða þar fari aðeins fram símenntun þegar út í
starf er komið. Þessu er varpað hér fram til umhugsunar en ekki reynt að gefa svör.
Þótt hér sé lögð áhersla á það markmið framhaldsskólans að búa nemendur
undir störf í atvinnulífinu þýðir það ekki að dregið sé úr mikilvægi hinna, þ.e. að
búa nemendur undir frekara nám og að búa þá undir líf og starf í lýðræðissam-
félagi. Lífið er annað og meira en vinnan og mikilvægt er fyrir hvern og einn að öðl-
ast menntun sem auðgar persónulegt líf og gerir einstaklingirm hæfari til að skilja
umhverfi sitt og njóta tómstunda.
Breytingar á atvinnulífi
Atvinnulífið er að sjálfsögðu í sífelldri þróun. Þær breytingar sem nú eiga sér stað
eiga rætur að rekja til tækniframfara, einkum á sviði tölvutækni og nýrrar sam-
skiptatækni, og þróunar í átt til eins allsherjar heimsmarkaðar í stað fjölda markaða
sem afmarkast við einstök lönd og svæði. Alþjóðavæðingin kemur m.a. fram í því
að framleiðsluvara er nú gjarnan fjármögnuð frá einu landi, hönnuð í öðru,
framleidd í því þriðja og síðan dreift um allan heim (Reich 1991, Camevale 1991).
Staðlar um vörugæði eru sömuleiðis orðnir alþjóðlegir og neytendur gerast kröfu-
harðari um fjölbreytni og gæði. í mörgum tilfellum þarf varan að standast sérkröfur
einstakra kaupenda, jafnframt því sem þeir vilja ekki bíða eftir vöru eða þjónustu.
Rafeinda- og tölvutækni hefur verið notuð til að gera störf sjálfvirk og einnig til
þess að gefa upplýsingar um einstaka verkþætti eða heil ferli. Tæknin hefur gert
unnt að framleiða vörur og skapa þjónustu fyrir ákveðna markaði eða jafnvel ein-
staka viðskiptamenn - staðabundið og á heimsvísu - á stuttum tíma og á auðveldan
hátt. Þróuð samskiptatækni gerir fyrirtækjum kleift að brjótast út úr einangrun
smárra markaða. Tölvunet tengja einstaklinga og vinnuteymi innan stofnana og
fyrirtækja jafnframt því sem þau tengja fyrirtæki við samstarfsaðila og viðskipta-
vini. Þessar tæknibreytingar verða til þess að lega íslands fjarri öðrum löndum
skiptir æ minna máli í heimi viðskiptanna.
Þessi umbylting er nú að breyta eðli starfa í verksmiðjum, á skrifstofum og í
þjónustufyrirtækjum, bæði hjá faglærðu og ófaglærðu vinnuafli um allan heim.
Þetta á við um þróuð iðnríki jafnt sem svonefnd þróunarlönd. Sagt er að hér sé um
álíka umfangsmiklar breytingar að ræða og urðu á tímum iðnbyltingarinnar á 19.
öld. Þetta nýja tímabil hefur verið nefnt ýmsum nöfnum, s.s. tölvuöld, upplýsinga-
öld, þriðja iðnbyltingin eða nýja efnahagskerfið2 (Commission on the Skills of the
American Workforce 1990, IRDAC 1990, Reich 1991, Camevale 1991, Marshall og
Tucker 1992, SCANS 1992).
Fæmi starfsmanna
Kröfur til starfsmanna eru alltaf að breytast. Þær breytingar sem nú eru að verða á
færnikröfum í atvinnulífinu eru sáralítið kannaðar enn sem komið er (Howell og
2 Gjarnan nefnt the new economy á ensku.
61