Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Page 104
RÁÐGJÖF Í SKÓLUM
erfiðleika eða félags- og tilfinningaerfiðleika, fer það alltaf eftir eðli máls hvers kon-
ar ráðgjöf þeir nota. Mikilvægt er að þeir geti notið faglegrar aðstoðar hver hjá öðr-
um til þess að tryggja sem best undirbúning og vinnu með málið. Miklu skiptir að
fagaðilar stuðli að virðingu, einlægni og hlýju í garð einstaklinganna svo þeir finni
öryggi og njóti trúnaðar og gildir þá einu hvers konar ráðgjöf fagaðilar veita.
Námsráðgjafi verður oft fyrstur var við vanlíðan hjá nemendum vegna þess að
til hans geta allir nemendur leitað. Oft eru þessi vandamál nemenda óljós í upphafi
náms þeirra á framhaldsskólastigi. Má t.d. nefna lestrarerfiðleika, sem oft eru
ástæða fyrir lélegum námsárangri. Mikilvægt er að námsráðgjafi geti vísað strax á
sérkennara, sem með greiningu kemst nánar að vanda nemenda, og í sameiningu
geta námsráðgjafi og sérkennari auðveldað nemendum nám við skólann. Með því
að meta sameiginlega þörf nemandans fyrir stuðning og ráðgjöf gengur e.t.v. betur
að hjálpa nemendum með mismunandi vandamál. Sem dæmi um vandamál nem-
enda má benda á ársskýrslu námsráðgjafa Menntaskólans við Sund fyrir skólaárið
1991-1992 (Námsráðgjöf 1992). Þar kemur fram að af 575 viðtölum eru 257 vegna
persónulegrar ráðgjafar og 318 vegna námsráðgjafar. í persónulegu ráðgjöfinni var
t.d. um að ræða samskiptaerfiðleika á heimili, kvíða, þunglyndi, sjálfsvígshug-
myndir, lystarstol, ofbeldishneigð, sjúkdómsótta, þunganir, áfengisneyslu, sorg,
feimni og félagslega erfiðleika eða geðrænan vanda af öðrum toga.
Það sem greinir að ráðgjafarstörfin tvö er m.a. eðli og viðfangsefni starfanna.
Eitt af hlutverkum námsráðgjafa er án efa að leiðbeina nemendum í náms- og
starfsvali. En kennsluráðgjöf sérkennara er bundnari ákveðnum kennsluaðferðum
námsgreina m.a. sem námsaðlögun fyrir nemendur með sérþarfir. Hins vegar er
einstaklings- og hópráðgjöf fyrir t. d. fatlaða stutt á veg komin hérlendis og er það
verðugt samstarfsverkefni námsráðgjafa og sérkennara að þróa í sameiningu
alhliða náms- og starfsráðgjafarferli fyrir fatlaða.
Nemendum með námserfiðleika, sem geta verið á hvaða aldri sem er, getur
persónuleg ráðgjöf komið að miklu gagni. Nemendur með námserfiðleika eru oft
vonlitlir, ósjálfstæðir og sjálfstraust þeirra er oft í molum. Með því að fá þá til að tjá
sig um vandamálið og komast sem næst kjarna þess geta ráðgefandi sérkennarar og
námsráðgjafar hjálpað nemendum við að setja sér markmið með náminu miðað við
sínar þarfir. Þannig öðlast nemendur meira sjálfstraust og persónuþroska. Náms-
erfiðleikar nemenda eru oft miklu meiri í þeirra augum en tilefni eru til. Með rétt-
um aðferðum ráðgjafa er oft hægt að yfirvinna þá þætti sem virðast hamla námi
nemenda, þ.e. ósjálfstæði og vonleysi.
Bæði námsráðgjafar og sérkennsluráðgjafar geta sinnt félags- og tilfinningaerfið-
leikum. Þeir nemendur eru oft lokaðir einstaklingar sem láta verkin tala eða eru
óeðlilega hlédrægir. Aðrir sýna sífellt á sér nýjar hliðar svo erfitt er að átta sig á
þeim. Ráðgjafar þurfa að geta skapað einlægt andrúmsloft þar sem þessir nem-
endur geta tjáð sig. Þeir þurfa að komast að innsta kjarna þeirra og finna styrkleika
nemenda sem hugsanlega fá ekki notið sín. Með því að hjálpa slíkum nemendum
að finna því merkingu sem þeir gera eða gera ekki og mynda traust samband ráð-
gjafa og skjólstæðingsins er alltaf von um persónulegan þroska og jákvæðar breyt-
ingar.
102