Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Síða 122

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Síða 122
LÍÐAN FORELDRA OFVIRKRA BARNA OG REYNSLA ÞEIRRA A F SKÓLANUM að börn hafi eina eða fleiri fylgiraskanir. Samkvæmt rannsókn Szatmari, Offord og Boyle (1989) hefur meira en helmingur ofvirkra barna a. m. k. eina fylgiröskun. Það er því ljóst að í meirihluta tilfella þurfa börnin og uppalendur þeirra ekki einungis að kljást við einkenni ofvirkni heldur einnig fylgiraskanir. Allstór hluti barnanna grein- ist með mótþróaþrjóskuröskun (oppositional defiant disorder) og hegðunarröskun (conduct disorder), ennfremur kvíðaraskanir og margs konar þroskafrávik, s.s. mál- og talgalla (American Academy of Pediatrics, 2000; Barkley, 1998: 153-154). Ofvirkum börnum er hættara en öðrum börnum við að eiga við örðugleika að stríða þegar þau eldast en sumum þeirra reiðir illa af, gengur illa í skóla, eiga við alvarleg hegðunarvandkvæði að stríða, lenda á braut andfélagslegrar hegðunar, afbrota og misnotkunar ávana- og fíkniefna (American Academy of Pediatrics, 2000; Barkley, 1998: 217,153-154). Ljóst er að foreldra og annarra sem fást við uppeldi og kennslu ofvirkra barna bíður mun erfiðara verkefni en þegar um önnur börn er að ræða. Það er fyrst og fremst á þremur sviðum sem erfiðleikar barnanna birtast og geta valdið foreldrum álagi. I fyrsta lagi eru samskipti ofvirkra barna og foreldra um margt erfiðari en hjá öðrum börnum. I öðru lagi er skólaganga barnanna oft erfið og í þriðja lagi eiga ofvirk börn oft í vanda í félagslegum samskiptum. Ofvirk börn eiga gjarnan í erfið- leikum í skóla, bæði félagslega og hvað námsframmistöðu varðar. Þeim gengur illa að sitja kyrrum, einbeita sér og fylgja fyrirmælum og eiga samskipti við jafnaldra. Þeim reynist til að mynda erfitt að halda athygli við skólaverkefni, þau trufla kennslu í bekknum og nám skólafélaganna og eiga í vanda með heimanám. Námsárangur er gjarnan slakur, enda eru 20-30% ofvirkra nemenda talin eiga við námsörðugleika að stríða auk ofvirkninnar (sem í sjálfu sér hlýtur að teljast til námsörðugleika), börnin eru óhlýðin og geta sýnt árásargirni. Ofvirk börn hafa ennfremur tilhneigingu til að eiga í félagslegum örðugleikum, ekki síst ef þau eru árásargjörn. Þeim er ósjaldan hafnað af jafnöldrum sem stafar líklega af hvatvísi barnanna og athyglisbrestur bitnar á félagslegri hegðun þeirra (Barkley, 1998:190; DuPaul og Stoner, 1994:3-5). Að mati Barkleys (1998:190-191) má draga þá ályktun af rannsóknum að það sé einmitt skólaganga barns sem oft valdi bæði foreldrum og ofvirkum börnum þeirra mestri vanlíðan; foreldrar þurfi að takast á við að hjálpa börnum sínum bæði í námi og félagslegum örðugleikum. Þar að auki geta foreldrar jafnvel mætt því viðhorfi frá kennurum að vandi barnsins stafi af lélegu uppeldi (Barkley, 1998:190-191). Þar sem mikið af vanda ofvirkra barna, og þá um leið foreldra barnanna, tengist skólagöngu fer ekki hjá því að samband foreldra og starfsfólks skóla skipti miklu, enda eru góð og regluleg samskipti heimilis og skóla talin sérlega mikilvæg þegar of- virk börn eiga í hlut. I þessu sambandi má vitna til höfunda á borð við Rief (1993:5-8) en að hennar áliti eru góð samskipti og samvinna skóla og heimilis mikilvæg fyrir árangur í kennslu ofvirkra barna. I sama streng taka Montague og Warger (1997) sem benda á að mikilvægt sé að kennarar og foreldrar hafi regluleg samskipti í tengslum við ákvarðanir sem varða barnið í skólanum. Allmargar rannsóknir hafa verið gerðar á fjölskyldum ofvirkra barna. Niðurstöð- ur þeirra hafa leitt í ljós að samanborið við fjölskyldur annarra barna eiga þessar fjöl- 120
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.