Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 146

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 146
MAT A SAMSKIPTAHÆFNI FJOGURRA ARA BARNA Kennsluaðferðir byggðar á hugsmíðahyggu og ætlaðar til nota í starfi með leikskóla- börnum einkennast af því að kennarinn virðir sjálfræði barnanna, þ.e. hann virðir rétt barnanna til þess að hafa eigin tilfinningar, hugmyndir og skoðanir. DeVries og sam- starfsfólk hennar (1991) gerðu samanburð á samskiptahæfni þriggja hópa leikskóla- barna þar sem stuðst var við kennsluáætlanir runnar undan rótum mismunandi upp- eldisstefna, þ.e. hugsmíðahyggju (constructivism), námskenningu (social learning theories) og stefnu sem byggir á vöidum þáttum ýmissa stefna (eclectic). í rannsókn sinni studdust DeVries og samstarfsfólk hennar við flokkunarkvarða sem hannaður var af Selman og félögum (Stone, Robinson og Taylor, 1980). Kvarðinn byggði á stig- um samskiptahæfni sem DeVries og félagar löguðu að notkun fyrir leikskólabörn. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar var marktækur munur á hegðun barna úr leikskólanum þar sem stuðst var við hugsmíðahyggju en þau sýndu að jafnaði hegð- un á hærra stigi samskiptahæfni en börn úr hinum tveimur leikskólunum (DeVries, Reese-Learned og Morgan, 1991:473-517). Niðurstöður rannsóknar Göncú og Cannella (1996:57-67) leiddu í ljós að þegar leikskólakennarinn dró úr að beita eigin valdi og leiddi börnin áfram að lausn ágrein- ings með opnum spurninum þá urðu börnin færari um að skilja sjónarmið annarrra. Rannsóknir (Zahn-Waxler, Radke-Yarrow, Wagner og Chapman, 1992) sýna að þegar á öðru ári sýna börn hegðun sem endurspeglar umhyggju fyrir öðrum og á leikskóla- árum barns mótast hæfni barna til að skilja tilfinningar og hugsun annarra (Miller, Eisenberg, Fabes og Shell, 1996). Ennfremur sýna rannsóknir (Arsenio og Cooper- man, 1996) að skilji ung börn sínar eigin tilfinningar og annarra sýna þau síður árás- arhneigð. ímynd barnsins Sænski uppeldisfræðingurinn Gunilla Dahlberg (Dahlberg, Moss og Pence, 1999:35-36) telur kenningar sem segja að börn á ákveðnum aldri séu sjálflæg og ekki fær um að skilja sjónarmið annarra vera ákveðna hindrun hvað varðar sýn okkar á barnið. Dahlberg telur að ýmsar kenningar af þessum toga endurspegli hugmyndir um börn sem lítt kunnandi og vitandi einstaklinga. Hún telur að ýmsar kenningar um getu barna á ákveðnum aldri stefni að því að gera öll börn „eðlileg" og þetta end- urspegli sýn sem byggir á því að litið er á barnið sem lítt kunnandi og lítt vitandi ein- stakling. Dahlberg og fleiri fræðimenn (Dahlberg, Moss og Pence, 1999:147-156, 43-61; Edwards, Gandini og Forman, 1993:71-73) telja að sú ímynd standi í vegi fyr- ir því að við getum litið á barnið sem sterkan einstakling og hún sé fremur líkleg til þess að hefta þroska þess. Framangreindir fræðimenn kjósa fremur að styðjast við þá ímynd af barni að það sé sterkt, skapandi og mikils megnugt. Þeirra sýn er að barn- ið byggi upp þekkingu í samvinnu við aðra einstaklinga, bæði fullorðna og börn. Það er því mikilvægt að líta á samskipti barns og fullorðins sem samvirkni milli tveggja einstaklinga sem eru sérfræðingar hvor á sínu sviði. Þetta krefst þess að báðir aðilar séu virkir á þann hátt að „tveir hugir mætist" í þessu þróunarferli þekkingarinnar (Donaldson, 1978:17-30; Wood, 1998:15-18; Dahlberg, Moss og Pence, 1999:48-52). 144
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.