Iðunn - 01.11.1884, Síða 13

Iðunn - 01.11.1884, Síða 13
Breiðu herðarnar. 235 hræddur um að hjarta hans hafi brostið. Jeg var einka barn hans og guð einn veit, hvað glæsilega framtíð hann hefir ætlað mér. Hann hafði aldrei komizt lengra sjálfur en í undirtyllu embætti við bág kjör ; jeg átti nú að minsta kosti að komast svo hátt að fá stjórnarráðs nafnbót. Minn góði, gamli faðir unni mér hugástum, og það er það sárasta sem hefir kornið fyrir mig á æfinni, aö jeg skyldi gera honum svo mikla sorg og mæðu—og þó veit guð, að það var mjög á móti vilja mínum. Faðir minn var ekkert fyrirtak að gáfum, en hanu var ráðvendnin sjálf og valmenskan.—Friður veri með dupti haus. Já, þá er nú einnig að taka fram góðu hliðina á þessari fimm ára fanga vist;—það gotur hugsast að jeg hafi verið of blóðríkur eða þá að blóð mitt hafi ekki verið blandað í réttum hlutföllum, eða að það hafi þurft að brjóta sig og jafna sig sjálft, eins og vínið, sem menn láta liggja svo sem tvéggja mánaða tíma í kjallaranum, áður en menn tappa það á flöskur. Svo mikið er víst að fyrst framan af sauð og ólgaði blóðið í mér fjarskalega, svo mér lá við að halda.að jeg hefði það ekki af, eða þá að jeg yrði bandóður; en það kyrðist í mér smámsaman, það færðist einhver ró- semd, já, hreint að segja einhver helgidagsfriður yfir huga minn, svo mér gat ómögulega fundizt aðjeg væri eins ógæfusamur og mér hefði átt að finnast, eptir því sem skyldan bauð mér. jpó mér gæti ekki skilizt, hversvegna sá maður, sem var sér ekki neins glæps meðvitandi, ætti endilega að sæta sömu meðferð og glæpamaður, þá hugsaði jeg svona með sjálfum mér: guð veit það líklega; og skyldi svo vera að hann kærði sig ekki neitt sérstaklega mikið um annan eins greyskiuns garm og mig, þá hugsaði jeg, að þetta

x

Iðunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.