Iðunn - 01.11.1884, Side 15

Iðunn - 01.11.1884, Side 15
Breiðu herðarnar. 237 var ekki að eins vel skrifandi heldur eiunig góður reikningsmaður; lét hann á sér heyra að jeg mundi vafalaust vera sérlega vel upplagður fyrir stærðfræði. Jeg hló fyrst að þessum orðum hans eins og mark- leysu, en með því hann var sjálfur afbragðs stærð- fræðingur og sterkur í röksemdaleiðslu, þá sannaði hann mér til fullnustu, að hann hefði rétt að mæla. Mér varð einhvern veginn undarlega við þetta. Jeg fekk nú í fyrsta sinni nokkurs konar virðingu fyrir sjálfum mér, og þó enn meiri virðingu fyrir velgjörða- manni mínum, og þegar jeg skömmu síðar leysti als- endis rétt úr verkefni einu, sem hann hafði fengið mér, og þegar hann svo ldappaði mér á herðarnar og sagði : »þarna getið þér séð, Eóland, þér komist prýðilega fram úrþví«—já, þávarð jeg svo klökkur, að jeg feldi fegins tár af augum og kysti á hendur val- mennisins með innilegri þakklátssemi. Og hann gerði meira fyrir mig en þetta. |>að stóð svo á að einmitt um þessar mundir var settur upp gas-mælir í kastalanum. Herra v. Eisenfresser sagði sjálfur verkmönnum fyrir og lót mig ekki að eins semja allar áætlanirnar og búa til uppdrættina í skrifstofunni, heldur gerði hann mig í tilbót að umsjónarmanni við byggingarverkið, svo að eg fyrir hans aðstoð kyntist út í æsar öllu hér að lútandi, bæði hvað hið þekkingarlega og verklega snerti. “það getur komið yður að noturn þó seinna verði, Eóland minrni, sagði hann opt þegar hann kom inn í starfhúsið, og ldappaði mér þá um lcið á herðarnar til að láta í ljósi ánægju sína. Honum geðjaðist vol að herðum míuum, bless- uðum karlinum. Mínar herðar voru svo afarbreiðar °g hans voru svo rnjóar. »það er sönn ánægja að

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.