Ægir - 01.09.1951, Síða 52
260
Æ G I R
an. Tóku frystihúsin alls á móti 5 641 smá-
lest af karfa, en hér var aðeins um að ræða
byrjun, sem gera má ráð fyrir að aukist all-
verulega. Magn það af steinbít, sem frysti-
húsin tóku á móti, 3 250 smálestir, varð
1 000 smálestum minna en árið áður, en
hlutfallslega heldur meira, eða 5.7%. Ástæð-
an til þess að magnið var minna var sú, að
steinbítsafli hrást mjög, en hins vegar var
steinbíturinn eftirsóttur í frystihúsin vegna
þeirra góðu möguleika, sem eru á að selja
liann til Bandaríkjanna. Flatfiskmagnið var
nú heldur minna en áður, eða um 4.6% af
heildarmagninu, á móti 5.5% árið áður.
Stafaði það af þvi, að nokkur óvissa var
ríkjandi um sölu á flatfiskinum lengi fram
eftir og því ekki lögð eins mikil áherzla á
að frysta hann og áður. Langsamlega mest-
ur hluti flatfiskanna var að sjálfsögðu skar-
koli, en einnig var fryst nokkuð af þykkva-
lúru og langlúru lítilsháttar, en auk þess
töluvert magn af lúðu, miðað við það, sem
áður hefur verið, en nokkrir bátar stund-
uðu þær veiðar sérstaklega um vorið eins
og áður hefur verið getið, og var lúðan
heilfryst fyrir Bandaríkjamarkað. Aðrar
fisktegundir, sem frystihúsin tóku á móti
lil frystingar, voru elcki teljandi, svo sem
keila, ufsi, langa og skata, enda liefur verið
talinn lítill markaður fyrir þessar tegundir
frystar og auðveldara að selja þær saltaðar.
Auk þess tóku frystihúsin á móti nokkru
magni af hrognum, eða alls 62 smálestum,
sem er að vísu aðeins litill hluti af þeim
lirognum, sem lcomu á land, þar sem megin
hluti þeirra var saltaður. Hefur yfirleitt
lítið verið fryst af lirognum undanfarin ár.
Þess var áður getið, að meginhluti frysti-
húsanna hefði vanalega verið starfræktur
aðeins nokkurn hluta ársins eða aðallega
yfir vetrarvertiðina, á tímabilinu frá janúar
til maí, en á þessu varð, svo sem kunnugt
cr, nokkur breyting á árinu við það, að
hafin var frysting á karfa úr togurunum.
Ekki gætti þessarar breytingar þó mikið á
þessu ári vegna þess, hversu karfaveiðarnar
hófust seint vegna verkfallsins, en óvenju
mikið var þó fryst í mánuðunum nóvember
og desember, en einmitt á þeim tíma hefur
vanalega verið mjög lítið um framleiðslu
hjá frystihúsunum. Móttaka frystihúsanna
í þessum tveim mánuðum var um 15% af
heildarmagninu yfir árið, en hefur venju-
lega verið undir 3%. Vetrarvertíðin var þó
langdrýgst, en á tímabilinu frá febrúar til
mailoka, þegar aðalvertíðin stendur yfir>
tóku frystihúsin á móti % af því magni,
sem þau fengu yfir árið, en langmest var
fryst í marzmánuði, tæplega 23 % af magn-
inu, eða um 13 000 smálestir.
Tiltölulega meira magn fór til frystihús-
anna í Sunnlendingafjórðungi að þessu
sinni en undanfarið hefur verið. Að jaínaði
hefur það verið um og yfir % af heildar-
magninu, en varð að þessu sinni 72% rúm-
lega. Næst kom svo Vestfirðingafjórðungur
með 19.3%, sem er hlutfallslega nokkuð
minna en á fyrra ári, enda var það magn,
sem frystihúsin í Vestfirðingafjórðungi
tóku á móti, um 30% minna en áður. í
Norðlendingafjórðungi tóku frystihúsin á
móti um 4.7% af heildarmagninu, en magn
það, sem frystihúsin þar tólcu á móti, náði
ekki helming þess magns, sem þau höfðu
tekið árið áður. Loks var Austfirðinga-
fjórðungur með tæplega 4%, en frystihúsin
þar fengu um % þess magns, sem þau höfðu
tekið á móti árið áður. Tiltölulega mest af
þeim fiski, sem frystihúsin taka á móti i
Sunnlendingafjórðungi, er þorskur, sem
kemur af þeirri eðlilegu ástæðu, að frysti-
húsin þar hafa að jafnaði aðallega verið
starfrækt á vertíðinni, þegar þorskveiðin
er mest, en minna þess utan. Aðrar fisk-
tegundir, svo sem steinbítur, hafa meiri
þýðingu í hinum fjórðungunum, og sér-
staklega á þetta við um Vestfirði, en þar er
steinbíturinn nær % hluti af öllu því, sem
frystihúsin þar hafa tekið á móti, þrátt fyrir
það, að steinbítsveiðin brást mjög á þessu
ári. Hins vegar hefur langsamlega mestur
hluti karfans komið á land í Sunnlendinga-
fjórðungi, enda þótt hann væri veiddur iit
af Vestfjörðum sunnarlega, enda hafa