Ægir - 15.12.1959, Síða 47
ÆGIR — AFMÆLISRIT
45
við landhelgisgæzlu, en stundaði einnig
fiskveiðar og fiskflutninga. Eftir lok
styrjaldarinnar var skipið selt útgerðar-
félagi á Flateyri. 1938 lét ríkisstjórnin
smíða á Akureyri 72 lesta varðbát, „Óð-
inn“, og hefur hann verið við varðgæzlu
til þessa dags. Loks kom svo þriðji „Þór“
hingað til lands 1951, 693 lestir. „Þór“
er stærsta og vandaðasta skipið, sem
landhelgisgæzlan hefur haft til umráða
til þessa, og svo hraðskreiður, að hann
hefur í fullu tré við hraðskreiðustu ný-
tízku togara.
Um langt skeið hefur verið unnið að
því að safna fé til smíða björgunarskipa
og stefnt að því, að hver landsfjórðungur
fengi shkt skip til aðstoðar fiskibátum
á aðalvertíðum. Undanfari þessa var skip
Slysavarnafélags íslands „Sæbjörg", sem
var smíðuð í Danmörku 1937, en stækkuð
1948. Síðan hefur ríkissjóður leigt skipið
af slysavarnafélaginu og notað það til
landhelgisgæzlu og björgunarstarfa.
1950 var smíðað nýtt skip í Danmörku,
„María Júlía“ 138 lestir. Þetta skip var
smíðað með ríflegu framlagi frá Vest-
firðingum og hefur sinnt varðgæzlu og
björgunarstarfi síðan.
Björgunar- og varðskipið „Albert", 201
lest, var fullsmíðað 1957, og er það annað
stálskipið, sem smíðað er hér á landi.
Norðlendingar lögðu mikið fé til smíði
skipsins.
3. Verksmiójuskip.
Eftir síldarhlaupið í Hvalfjörð 1947—’48
þótti nauðsynlegt að auka bræðsluafköst
síldar hér í flóanum. Var í því skyni
keypt frá Bandaríkjunuim 4898 lesta
gufuskip, sem fékk nafnið „Hæringur“
og kom hingað til lands 1948. Skipið var
búið síldarbræðslutækjum, en vegna hrá-
efnisskorts þurfti aldrei til þess að taka
hér syðra, en sumartíma var það við
Norður- og Austurland um síldveiðitím-
ann, en sú útgerð bar lítinn árangur
vegna aflabrests. „Hæringur“ var seldur
til Noregs 1954.
U. Dráttarskip.
Eftir því sem útfærslu Reykjavíkur-
hafnar miðaði áfram og skipakomur til
hafnarinnar jukust, þótti nauðsyn bera
til að höfnin eignaðist dráttarbát til að
aðstoða skip inn og út úr höfninni og
„Magni“.
innan hennar. Varð þetta að ráði, og var
keyptur í Þýzkalandi 8 ára gamall drátt-
arbátur sem gefið var nafnið „Magni“
111 lestir og hingað kom 1928. Starfaði
„Magni“ í höfninni, þar til nýi „Magni“
leysti hann af hólmi 1955. Það skip var
smíðað í Reykjavík og var fyrsta stál-
skipið, sem smíðað var hér á landi.
“Magni“ er 184 lestir ag stærð.
5. Dýpkunarskip.
Eftir því sem hafnargerðir hafa færst
í aukana, var þörfin fyrir dýpkunarskip
stöðugt brýnni. Árið 1947 kom hingað til
lands dýpkunarskipið „Grettir" 286 lestir,
sem ríkisstjómin lét smíða í Skotlandi.
Hefur það skip haft ærinn starfa síðan og
komið að miklu gagni. Vestmannaeyingar
hafa um skeið rekið sanddæluskip, en
ekki hefur sú fleyta verið tekin upp i
skipaskrá.
6. Selveiðiskip
Þó að lega íslands sé hagstæð til sel-
veiða í Norðurhöfum, hafa Islendingar
ekki haft mikinn áhuga fyrir þeim veið-
um. í heimsstyrjöldinni fyrri keypti Pét-
ur A. Ólafsson kaupmaður selveiðiskip
hingað til lands, sem gefið var nafnið
„Kópur“, og nokkru seinna eignaðist fé-