Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1959, Síða 123

Ægir - 15.12.1959, Síða 123
ÆGIR — AFMÆLISRIT 121 um þessum málum var unnið af miklum krafti. S. H. hafði stofnað eigin skrifstofu í New York árið 1944 til þess að annast sölu á freðfiskinum í Bandaríkjunum. Var Jón Gunnarsson ráðinn forstjóri fyrir þessari skrifstofu, er var breytt á árinu 1947 í sjálfstætt fyrirtæki, The Coldwater Seafood Corporation. Á miðju ári 1946 opnaði S. H. skrif- stofu í Amsterdam og veitti Guðmundur Albertsson henni forstöðu. Loks, árið 1947, var stofnsett í Praha, þriðja skrifstofan, sem dr. Magnús Z. Sigurðsson stjórnaði. Voru þannig 3 skrifstofur erlendis, sem eingöngu unnu að sölu og markaðsleit fyr- ir íslenzka freðfiskinn. Einnig hafa skrifstofur S. f. S. í New York og Englandi stöðugt unnið að þess- um málum fyrir frystihúsin. E/s Brúarfoss var eina íslenzka kæli- skipið á stríðsárunum. f stríðslok samdi Eimskipafélag íslands um smíði á 3 kæli- skipum auk m/s Gullfoss, en nýlega hefur það látið byggja m/s Selfoss og á félagið nú eitt frystiskip í smíðum. Frystihúsaeigendur innan S. H. stofn- uðu árið 1945 skipafélagið Jöklar h.f., sem nú rekur 3 kæliskip. Er m/s Langjökull nýjasta skip félagsins. Loks hefir S. í. S. eitt kæliskip. Getur flotinn í dag flutt í einni ferð um 12000 lestir af freðfiski. Fyrstu árin var salan heldur lítil til Bandaríkjanna, en fór svo ört vaxandi og var þessi markaður um árabil stærsti kaupandinn og hefir ísland lengi verið næst stærsti innflytjandi freðfisks til Bandaríkjanna. Mjög hefir orðið að vanda alla fram- leiðslu fyrir þenna markað bæði hvað snertir gæði, pökkun og útlit vörunnar. Er fiskurinn vafinn í cellophane og pakk- að í 1 lbs, 5 lbs og 15 lbs öskjur. Þann 19. marz, 1950, var gengi ís- lenzku krónunnar lækkað um 42,6% og um leið afnumin ríkisábyrgð á útflutn- ingsvörum bátaútvegsins. Þessar ráðstaf- anir höfðu mikilvæg áhrif á þróun fram- leiðslu- og markaðsmálanna, og var fryst- ing fyrir Bandaríkjamarkað stóraukin. Á þessu ári var byrjað að frysta fisk veidd- an af togurum, aðallega karfaflök, sem eingöngu voru seld til Bandaríkjanna, þar til samningar voru gerðir við Sovétríkin 1953. Áður hafði karfinn verið veiddur til vinnslu fyrir fiskimjölsverksmiðjur. Á árinu 1953 var tekin upp sú ný- breytni, að frysta flök í sérstakar blokkir, sem eru sagaðar niður í skammta og stangir, sem þvínæst eru settar í brauð- dýfu og í mörgum tilfellum steiktar. Síð- an er fiskinum pakkað í mjög smekk- legar neytendaumbúðir og þarf ekki ann- að en hita hann upp fyrir máltíðina. Miklar vonir eru bundnar við þessa fram- leiðslu, sem ætti að geta aukið hina litlu fiskneyzlu í Bandaríkjunum. Þar eru ákjósanlegustu skilyrði fyrir aukinni sölu freðfisks, fullkomið dreifingarkerfi, 170 milljónir neytenda og kaupmáttur launa hærri en í nokkru öðru landi. Strax á árinu 1945 tókst sala á 2500 lestum til Frakklands, sem hefir árlega verið kaupandi, þó að viðskiptin hafi dreg- izt saman vegna sérstaklega hárra að- flutningsgjalda. Á næsta ári opnaðist markaður í Tékkóslóvakíu, sem ávallt síð- an hefir keypt mikið magn af freðfiski. Samtímis hófst sala til Sovétríkjanna, sem keyptu um 54% af framleiðslu ársins 1946. Keyptu þau einnig verulegt magn árið eftir, en eftir þann tíma tókust ekki samningar um sölu á freðfiski fyrr en á árinu 1953. Síðan hafa Sovétríkin verið stærstu kaupendur að íslenzkum freðfiski og hafa í ár keypt um 59% af heildarfram- leiðslunni. Er enginn vafi á því, að þessi stóri og þýðingarmikli markaður hefir ýtt mjög undir byggingu hinna stóru nýju frystihúsa, sem nú eru að taka til starfa. Á árunum eftir heimsstyrjöldina þar til 1950 keypti Holland mikið af freðfiski. Var hér um stríðsfyrirbrigði að ræða, matarskortur herjaði í mörgum löndum. Þannig var seldur freðfiskur til Vestur- Þýzkalands, Austurríkis og fleiri landa án þess að tryggur markaður fengist. Enda
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.