Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.1993, Qupperneq 32

Ægir - 01.10.1993, Qupperneq 32
SJÓKORT KOHJ Í? Á Oi!$LÍl$JÍI Fyrirtœkið Radíómiðun hf. hefur gefið út geisladisk tneð sjókortum íslands og Fcereyja ásamt eli- efu landakorhim. Diskurinn er œtlaður til notkunar í svonefndum Macsea skipstjómarbúnaði og er unnt að fylgjast með siglingu skipsins á sjálfu sjókortinu sem birtist á skjánum. Þetta er í fyrsta skipti sem gefinn er út á íslandi geisladiskur sem inniheldur eingöngu gögn til tölvunotkunar. Tölvan sœkir kortið Geisladiskurinn veitir marg- víslega möguleika á notkun kortanna. Þannig má nota kort- in til þess að búa til önnur kort og eru teiknimöguleikar Mac- sea búnaöarins þá notaðir til þess að teikna upp úr sjókort- unum. Þá er unnt að kalla fram nánast hvaða sjókort sem vera skal með því einu að styðja á „músarhnapp" tölvukerfisins. Notandinn ákveður í hvaða mælikvarða hann vill skoða viðkomandi svæði og tölvan sér um að sækja rétt kort. Ef ekkert kort er til af viðkomandi svæði stækkar næsta kort sjálf- virkt, án þess að það komi nið- ur á gæðurn kortsins. Öll sjókort Sjómœlinga Á geisladiskinum er að finna öll sjókort Sjómælinga íslands, þar með talin öll hafnakort sem prentuö hafa verið í lit. Þar er ennfremur að finna sjókort Færeyja ásamt öllum helstu hafnakortum. Níu landakortum af íslandi, það er að segja lands- hlutakortum í mælikvarðanum 1:250.000, hefur einnig verið komið fyrir á þessari fyrstu út- gáfu geisladisksins, svo og yfir- litskorti í mælikvarðanum 1:500.000 og einu korti í mæli- kvarðanum 1:100.000. Um er að ræða alls 75 kort, en þar sem mörg þeirra eru stækkanleg án þess að missa skerpu verður heildarfjöldi kortanna 133. Kortin skoðuð í samfellu Kortin á geisladiskinum eru lesin inn á grafískan gagna- grunn sem þannig er úr garði gerður að skoða má öll kort í einni samfellu. Þá hefur öllum kortunum verið skeytt saman og þar sem nákvæmari kort er að finna eru þau skeytt inn í stærri kortin. Þessi tækni var fundin upp hjá Informatique et Mer, framleiðanda Macsea, og hefur vakið verðskuldaða at- hygli. Áskrifendaþjónusta Hjá Radíómiðun er í ráði að koma upp áskrifendaþjónustu vegna leiðréttinga sem gerðar eru á kortunum. Leiðrétting- arnar verða þá annað hvort sendar til notandans á tölvu- disklingi eða í gegnum In- marsat-C gervitunglasamskipta- kerfið, beint í tölvu skipsins. Þegar ný útgáfa af geisladiskum verður gerð gefst öllum eigend- um disksins kostur á að skipta og fá nýjustu útgáfu. Til þess að geta nýtt sér geisladiskinn þarf sérstakan geisladiskalesara, en hann er nú orðinn staðal- búnaður í nýjustu Macsea tölvunum. Sýnishorn afskjámyndum kerfsins. Yfir 80 íslensk skip meö búnaöinn Radíómiðun hf. hefur allt frá árinu 1990 unnið að þróun og markaðssetn- ingu á tölvubúnaði þeim sem nýtir urn- ræddan geisladisk. Radíómiðun er stor eignaraðili að franska hugbúnaðarfyrir' tækinu Informatique et Mer sem frain- leiðir Macsea skipstjórnarbúnaðinn og a Kristján Gíslason framkvæmdastjóri sa?t> í stjórn franska fyrirtækisins. Yfir áttatm íslensk skip eru með Macsea skipstjórnar búnað. □ 442 ÆGIR OKTÓBER 1993

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.