Ægir - 01.10.1993, Síða 47
Nýlega hlaut fyrirtækið Borg-
arplast vottorð um gæðakerfi fyrir-
tskisins, en vottunin er staðfest-
lng þess að reksturinn samræmist
ÍST ISO 9001 staðli. Borgarplast er
fyrsta alíslenska iðnfyrirtækið sem
vottast samkvæmt ISO 9001 og hið
sjötta sem fær ISO vottun.
Vörur fyrir sjávarútveg
Stærstur hluti framleiðslu Borg-
arplasts eru vörur fyrir sjávarútveg-
lr>n. Þannig framleiðir fyrirtækið
einangruð fiskiker í mörgum
staeröum, svo og vörubretti, línu-
t>ala og humartunnur, auk frauð-
Plastkassa sem fyrst og fremst eru
notaðir við útflutning á ferskum
fiski í flugi. Nýjasta framleiðslan
eru ýmiss konar baujur og belgir
fyrir fiskiskipaflotann.
Ragnar Sigurðsson verkfræðingur
hefur unnið að uppbyggingu
gæðakerfisins frá ársbyrjun 1992.
Gœðakerfið
Gæðakerfi Borgarplasts skiptist í
tuttugu kafla sem taka til allrar
starfsemi fyrirtækisins. Eftirlit er á
öllum sviðum framleiðslunnar.
Fylgst er með gæðum hráefna og
eftirlit er með framleiðendum
þeirra. Einnig er fylgst með fram-
leiðsluvörunum meðan verið er að
framleiða þær og einnig eru fram-
leiðsluferlarnir sjálfir skoðaðir.
Lokaskoðun fer svo fram áður en
varan er afhent. Vörurnar eru
merktar þannig að unnt er að
komast að orsökum gæðavanda-
mála sem upp kunna að koma í
framleiðslunni.
sé mjög mikilvægt þegar sótt sé
inn á erlenda markaði eins og
Borgarplast hefur nú í bígerð. í
öðru lagi bæti staðallinn starfsem-
ina. Óvissu sé eytt og samræmd og
skipuleg vinnubrögð sett í önd-
vegi. í þriðja lagi dragi kerfið út
kostnaði þar sem rýrnun og sóun
af ýmsu tagi minnka og minna
verði um gallaða vöru.
Sókn á erlenda markaði
Hjá Borgarplasti er nú unnið
eftir fjögurra ára áætlun í sölu- og
markaðsmálum sem hófst í árslok
1991. Markmiðið er að auka mark-
aðshlutdeild fiskikera á innlendum
markaði úr 30% í 50% og koma ár-
legum útflutningi fyrirtækisins yfir
100 milljónir króna fyrir árslok
1995. □
Aukin vörugœði
Guðni Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Borgarplasts, segir að ávinn-
lrigurinn af vottuðu gæðakerfi sé
^Reðal annars aukin vörugæði.
^örur verði betur hannaðar og
uPpfylli betur kröfur viðskiptavin-
arms. Einnig verði fyrirtækið betur
rekið. Þá minnki innri kostnaður
Vegna faerri galla í framleiðslu og
^rkvissari vinnubragða. Á þeim
^inia sem unnið hefur verið eftir
§®ðakerfi innan Borgarplasts hefur
llt að mynda einangrunargöllum í
tlskikerum fækkað úr 2% niður í
og stefnt er að því að komast
öiöur fyrir 0,4%. í beinu framhaldi
at vottuninni hafa náðst samning-
ar um útflutning á fiskikerum sem
0víst er að hefðu náðst ef vottunin
^eföi ekki verið fyrir hendi. Einar
Þrír meginkostir
Guðni Þórðarson nefnir þrjá
meginkosti við gæðakerfið. í fyrsta
lagi veki vottunin traust og virð-
ingu meðal fyrirtækja erlendis sem
Kjartan Kárason, framkvœmdastjóri
Vottunar hf., afhendir Guðna Þórðar-
syni, framkvœmdastjóra Borgar-
plasts, vottunarskjalið. Gunnar Guð-
mundsson hjá Ráðgarði fylgist með.