Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1954, Page 50

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1954, Page 50
né bótum samkvæmt 2. gr. laganna. Hins vegar var henni dæmt kaup úr hendi S. fyrir vinnu í hans þágu. (Dómur B.þ. R., 3/7 1951). B. ERFÐARÉTTUR. Gildi erfðaskrár. — Fjárhaldsmaður. Þann 8. júní 1951 andaðist Þ. Með erfðaskrá hafði Þ. arfleitt barnið Ó., sem var sonarsonur hennar og einasti skylduerfingi, að mest öllum eignum sínum. 1 erfðaskránni var einnig ákvæði þess efnis, að ákveðinn maður, J. skyldi verða fjárhaldsmaður Ó. Faðir Ó. var látinn, en ekkja hans G., sem var móðir Ó., taldi, að hún ætti heimtingu á að vera fjárhaldsmaður barnsins sbr. ákvæði 24. gr. laga nr. 95 frá 1947. Krafðist G. því þess, að fyrrgreint ákvæði erfðaskrárinnar yrði ógilt. Talið, að G. ætti rétt á því að vera fjárhaldsmaður Ó. að því er varðaði skylduerfð hans eftir Þ. og því yrði eigi breytt með erfðaskrá. Að því leyti, sem erfð Ó. hefði farið fram úr skylduerfðinni, þá var talið, að brostin væri veru- leg forsenda fyrir ákvæðum erfðaskrárinnar að þessu leyti og þau því metin ógild. (Dómur B.þ.R. 6/11 1951). C. FJÁRMUNARÉTTUR. Verksamningur. — Gildi ákvæða samþykkta stéttarfélaga. Á árinu 1950 tók múrsmíðameistarinn J. að sér múr- húðun fyrir G. — Hélt G. því fram, að svo hefði umsamizt með þeim, að fyrir verkið yrði greitt samkvæmt vinnu- stundafjölda. J. kvaðst hins vegar hafa sagt, að enda þótt hann sjálfur hefði ekki á móti því fyrirkomulagi, þá kæmi það ekki til mála, því að múrsmíðasveinarnir myndu aldrei samþykkja það, enda andstætt samþykktum þeirra. J. lét síðan hef ja vinnu og lagði vikulega fyrir G. skýrsl- ur, þar sem greindur var vinnustundafjöldi hvers starfs- manns og kaup hans. Greiddi G. síðan fé þetta til J., sem aftur greiddi það til hinna einstöku starfsmanna. 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.