Tímarit lögfræðinga - 01.01.1956, Blaðsíða 41
og ekkert grænlenzkt fullveldi. Bændur Grænlands mæta
ekki á allsherjarþingi fyrir Grænland og fara þar ekki með
fullveldi Grænlands, utanlandsmál þess eða heildariöggjöf
fyrir allt þjóðfélagið. Allri hinni gömlu, rakalausu dönsku
kreddu um þetta, er hvergi átti sér nokkurn stað í heimild-
um, hefur nú algjörlega verið varpað fyrir borð. Þar á
móti segir danska stjórnin á öðrum stöðum, að Grænland
hafi allt síðan á víkingaöld verið nýlenda eða norræn
dominion, þ. e. ekki haft nokkurt pólitískt sjálfstæði, og
pólitískt heyrt Islandi til, og verður síðar að því vikið.
Eiríkur rauði er hinn einasti af landnámsmönnum Græn-
lands, sem nokkru sinni hefur nokkur vafi leikið á að hafi
verið fullgildur íslenzkur þegn og fulltrúi hins íslenzka
þjóðfélags, enda þótt hann færi 982 út til þess, að bjarga
þessum ísl. þegnrétti sínum. Ari fróði kallar hann full-
gildan Islending fæddan hér (Islb., kap. 5). Tíminn sýnir,
að þetta hlýtur svo að vera (sjá Rjettarstöðu Grænl., bls.
256 frh.). En jafnvel þótt einn landnámsmanna Grænlands
hefði verið norrænn, myndi það ekki hafa haggað hinu ísl.
þjóðerni landnámsins né því, að nýlendan hefði eftir hin-
um forngermönsku réttarreglum hlotið að verða hluti hins
ísl. þjóðfélags. En nú fullyrðir Eske Brun og danska ríkis-
stjórnin, að Eiríkur hafi verið Islendingur. Svo fullyrðir
Eske Brun og danska utanríkisráðuneytið, að þessir ísl.
landnámsmenn Grænlands hafi tekið með sér þangað sín á
tungunni varðveittu félagslegu skipulög án nokkurs af-
dráttar (their traditional social arrangement without
modification), þ. e. lög sín og þjóðfélag og allt annað skipu-
lag án nokkurrar undantekningar eða afdráttar. Verður þá
ekki á því villzt, að Grænland varð ísl. nýlenda, enda hefði
það vissulega verið miklu meira en afdráttur, ef landnáms-
menn Grænlands hefðu gert uppreisn gegn ísl. þjóðfélag-
inu, athæfi, sem ókunnugt er, að nokluir þjóðleg fornger-
mönsk nýlenda hafi nokkru sinni gert gegn sínu móður-
landi. Landnámsmönnum Grænlands reið, — sem öðrurn,
er líkt stóð fyrir, — vissulega einnig meira á öðru en því,
35