Tímarit lögfræðinga - 01.06.1966, Síða 13
og 20856 mál i borgum þeim, sem þeir starfa i. Kviðdómur
var ekki til kvaddur í neinu þessara mála.
4. Yfirrétturinn (The High Court) var stofnaður með
lögum frá 1875. Skyldi hann lcoma i stað margra eldri
dómstóla og hafa það hlutverlc að samræma réttarfram-
kvæmd þeirra. Eftir sem áður er lögsaga hinna mörgu
deilda yfirréttarins að miklu leyti sú sama og áður var.
Deildir yfirréttarins eru þessar:
a) The Queen’s Bench Division. Hana sldpa dómsfor-
seti (Lord Chief Justice) og um það bil 33 aðrir dómarar.
Er hún lang stærst og umfangsmest allra deilda dóm-
stólsins, enda er lögsaga hennar víðtækust og nær einkum
til mála, sem falla undir venjurétt (Common Law). Hún
hefur ótakmarkaða lögsögu i borgararéttarmálum, svo
sem málum um samninga, skaðaverk utan samninga, verzl-
unarréttarmál og mál milli landeiganda og leiguliða. Und-
ir hana falla einnig mál, þar sem þess er óskað að ákvörð-
un um gæzluvarðhald eða fangelsun (Writs of Habeas
Corpus) verði horin undir dómstóla, að kveðinn verði upp
úrskurður um endurupptöku rnáls, sem lægra settur dóm-
stóll hefur fjallað um (prerogative orders of Certiorari),
að lagt sé hann við því, að lægra settur dómstóll haldi
áfram máli (Writ of Prohibition), að kveðnir séu upp
úrskurðir með fyrirmælum, sem beint er til lægra setts
dómstóls (Mandanuis). Siðastnefnt úrræði nota dómstólar
einkum til eftirlits með framkvæmdavaldinu, þ. e. hin-
um mörgu stjórnsýsludómstólum, sem getið verður um
hér á eftir, og til eftirlits með þvi hvernig framseldu lög-
gjafarvaldi er heitt. Heimilt er að áfrýja til deildarinnar
ýmsum öðrum málum. Má þar nefna mál um eftirlaun,
einkaleyfi og húsnæði, svo og ákvörðun um ýmis laga-
atriði i málum, sem stjórnsýsludómstólar annars fjalla
um. Arið 1963 var 123000 málum stefnt til þessarar deildar,
Tímarit lögfræðinga
75