Tímarit lögfræðinga - 01.06.1966, Page 50
launamálum þeirra, þar sem Dómarafélagið væri hvorki
aðili að B. S. R. B. né Bandalagi háskólamanna.
í því samhandi samþykkti fundurinn svofellda tillögu:
„í lögum nr. 53/1962 um kjarasamninga opinberra
starfsmanna er svo mælt, að ákvæði þeirra taki ekki
til ráðherra og hæstaréttardómara, sbr. þó 2. mgr. 4.
gr. laganna. Telur fundurinn að hliðstæðar reglur
eigi að gilda um dómara almennt og felur stjórn fé-
lagsins að vinna að því, að nefndum lagaákvæðum
verði breytt í það horf“.
Þá lýsti fundurinn ánægju sinni yfir því, að rikisstjórn-
in hefði ákveðið, að fram færi endurskoðun á dómaskipun
landsins, löggjöf um meðferð dómsmála og starfstilhögun
dómstólanna og endurskoðun á ákvæðum laga um sveit-
arstjórnarumdæmi landsins. Kaus fundurinn Sigurgeir
Jónsson bæjarfógeta til setu i nefnd, sem dómsmálaráð-
herra hafði ákveðið að skipa til að annast þá endurskoðun,
en hann hafði óskað þess, að Dómarafélag íslands nefndi
fulltrúa í hana. Áður hafði félagið nefnt Ásgeir Pétursson
sýslumann til setu i nefnd þeirri, sem fer með endurskoð-
un laga um sveitarstjórnarumdæmi landsins.
Samþvkkt var tillaga þess efnis, að skora á ríkisstjórn-
ina að hlutast til um það, að sett yrðu lög um kaup lausa-
fjár með afborgunarkjörum.
Auk framangreindra mála var fjallað um ýmis félags-
og hagsmunamál dómara.
Stjórn félagsins skipa nú: Hákon Guðmundsson yfirborg-
ardómari, formaður, Jón ísberg sýslumaður, formaður
Sýslumannafélagsins, í stað Páls Hallgrímssonar sýslu-
manns, er baðst eindregið undan endurkjöri, Þórður
Björnsson yfirsakadómari, formaður Dómarafélags
Reykjavíkur, Bjarni K. Bjarnason borgardómari og Torfi
Hjartarson tollstjóri.
Forseti íslands tók á móti fundarmönnum og konum
þeirra i mjög ánægjulegu síðdegisboði á Bessastöðum
fimmtudaginn 13. október, en daginn eftir minntist fé-
112
Tímarit löofræðinga