Tímarit lögfræðinga - 01.06.1966, Blaðsíða 53
Þá lagði Ólafur áherzlu á svonefnda fyrirbvggjandi barna-
vernd og þá fyrst og fremst félagslega þjónustu í þvi
sambandi.
Ennfremur tóku til máls dr. jur. Gunnlaugur Þórðar-
son, sem ræddi barnaverndarmál á við og dreif, og pró-
fessor Símon Jóh. Agústsson, sem benti m. a. á það mikil-
væga úrræði að létta á barnaverndarstofnunum með þvi
að vista börn á einkaheimilum.
Fundarmenn voru um 60 talsins.
Annar umræðufundur var haldinn í aprilmánuði og
stóð Orator, félag laganema, einnig að honum. Umræðu-
efnið var: „Friðhelgi einkalífs“. Framsögumenn voru
tveir, Benedikt Sigurjónsson, hæstaréttardómari, og Garðar
Gíslason, stud. jur., og fluttu þeir góð og athyglisverð
erindi um nefnt mál.
Benedikt Sigurjónsson rakti í sinni ræðu lagaákvæði
um efnið, og kom fram með ýmsar hugleiðingar varðandi
það, svo sem um símaánauð, heimsóknir, átroðning, sem
þekktir menn verða fyrir af forvitnu fólki og misnotkun
á Ijósmyndavélum. Þá vék hann að lagafvrirmælum á
Norðurlöndum í þessum efnum.
Garðar Gíslason talaði m. a. um njósnir um einkalíf
manna, og hávaðann, sem fólk yrði fvrir í stórborgum.
Þá fjallaði hann um það, þegar skýrt væri frá einkamál-
efnum manna opinberlega, og gerði greinarmun á því af
hvaða hvötum slíkur verknaður væri framinn.
Auk frummælenda tóku eftirtaldir til máls: Guðlaugur
Einarsson hrl., sem taldi það óviðeigandi að birta saka-
skrá manna í dómum, þegar afplánun refsingar eða upp-
reisn æru hefði átt sér stað. Gunnar Jónsson, stud. jur.,
talaði um, að raunsæisstefnan í bókmenntum vildi taka
einkalíf manna mjög nákvæmlega fyrir og væri það vel
til þess fallið að lækna sjúkt þjóðfélag. Skúli Thorarensen,
dómarafulltrúi, taldi, að setja ætti brýnt bann í lögum
við því, að notaður væri tæknilegur útbúnaður til að hnýs-
ast i einkamál manna. Magnús Sigurðsson, lögfræðingur,
Tímarit lögfræðinga
115