Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Síða 17
um eða munum, sem eru utan loftfarsins. I hinum nýju
umferðarlögum nr. 40/1968 eru engin ákvæði um tak-
markaða ábyrgð. Á það má einnig benda, að ábyrgð eftir
umferðarlögunum er hlutlæg, og sama er að segja um
ábyrgð samkvæmt loftferðalögunum á tjóni, sem verð-
ur utan loftfarsins, nema það hafi gerzt innan marka
viðurkennds flugvallar. Er því ábyrgð samkvæmt lögum
þessum í þessu efni ríkari en eftir siglingalögunum, þar
sem saknæmi þess, er tjóni veldur, er gert að skilyrði.
Það ósamræmi, sem hér kemur fram í löggjöfinni,
verður vart skýrt með því, að flutningsstarfsemi, sem
fram fer með skipum, þarfnist meiri verndar en flutn-
ingsstarfsemi með loftförum og vélknúnum ökutækj-
um. Mismunurinn mun fremur vera af sögulegum toga
spunninn. Það er svo annað mál, ef stefnt verður að
samræmingu í þessum efnum innan almennrar löggjaf-
ar, hvort heldur eigi að draga úr takmarkaðri áhyrgð
útgerðarmanna skipa eða innleiða og auka slíka ábyrgð
í öðrum atvinnugreinum, og á ég þá ekki einungis við
flutningsstarfsemi í lofti eða á landi. Þessi spurning
stendur í nánu samhandi við þau áhrif, sem ætla má,
að vátryggingarstarfsemi hafi i framtíðinni á almenna
þróun skaðabótaréttar. En það efni er umfangsmeira
en svo, að hér sé unnt að gera því nokkur skil.
Þórður Eyjólfsson.
Timarit lögfræðinga
101