Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Qupperneq 32
1.
2.
3.
4.
5.
6.
Endurgjald af húsaleigu fyrir júní, júlí
og ágúst 1962, fyrir sal þann, sem
stefnandi hafði á leigu hjá stefnda
Flutningur og breytingar á stað þann,
sem stefnandi varð að flytjast á
Tap á vinnulaunum fyrir september-
mánuð og viku af október
Auglýsingakostnaður
Endurgjald á húsaleigu á húsnæði því,
sem stefnandi varð að flytjast til frá
15. ágúst til 8. október 1962
Miskabætur
Kr. 6,000,00
Kr. 18,927,89
Kr. 20,000,00
Kr. 601,60
Kr. 4,375,00
Kr. 40,000,00
Kr. 89,904,49
Var það stefnukrafan í málinu. Fyrsti liðurinn var óum-
þrættur. Reikningar voru lagðir fram í málinu fyrir þann
kostnað, sem nefndur er í lið 2. Þar af var einn reikning-
ur fyrir flutningskostnað og var fjárhæð hans kr. 450,00.
Því var haldið fram, að uppsögnin 31. júlí hefði leitt til
þess, að stefnandi hafi haft mjög skamman tíma til þess
að leita að hentugu húsnæði, þar sem kennsla hefði átt að
hefjast 1. september. Hefði ekki tekizt að fá annað hús-
næði hentugra en það, sem tekið hefði verið síðar á leigu.
Liður nr. 3 var þannig skýrður, að allir eigendur
stefnanda (sem var dansskóli), hefðu haft með höndum
kennslu nemenda. Hefði verið búið að skrá 130 nemend-
ur til náms 1 september og skólagjaldið átt að vera kr.
200,00 á mánuði fyrir hvern nemanda. Fjárhæðin (20,000,-
00) væri þannig fundin, að gert hefði verið ráð fyrir, að
þrjátíu af hinum innrituðu nemendum hefðu ekki komið
til námsins og að það hefði dregizt viku af september að
hef ja kennsluna. Var því krafið um kennslugjald fyrir 100
nemendur í einn mánuð, þar sem kennsla hófst ekki í raun
og veru fyrr en 8. október 1962.
116
Tímarit lögfræðinga