Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Side 44
Umboð.
1 máli þessu krafði hlutafélagið A. einstaklinginn B. um
greiðslu út af kaupum á veiðarfærum. 'Stcfndi, sem var
hluthafi og stjórnarformaður í fyrirtækinu C. h.f. allt frá
stofnun þess á árinu 1957 og þar til það varð gjaldþrota
í septembermánuði 1960, kvaðst hafa tekið við vörum
þeim, sem hann var krafinn um greiðslu fyrir, og kvittað
fyrir móttöku þeirra á reikning. Framkvæmdastjóra
stefnanda hafi veríð ljóst, að vöruúttektin hafi farið fram
á vegum fyrirtækisins C. h.f., enda kvað hann það aldrei
hafa komið til mála, að hann tæki sjálfur á sig sjálfskuld-
arábyrgð á greiðslu varanna. Varnir stefnda voru þvi
byggðar á aðildarskorti.
Stefnandi mótmælti því hins vegar, að sér hefði verið
kunnugt um, að kaupandinn hefði átt að vera fyrirtækið
C. h.f. og benti á, að stefndi hefði átt einhver minniháttar
viðskipti gegn staðgreiðslu við stefnanda, en kvað hann
fyrst hafa komizt í bækur fyrírtækis stefnanda, þegar
hann hafði stofnað til skuldar þeii*rar, sem nú væri krafið
um. Kvað hann innheimtu skuldarinnar aldrei hafa verið
reynda hjá öðrum en stefnda. Þá skýrði stefnandi svo frá,
að það hefði fyrst verið rúmu ári síðar, sem stefndi hafi
tilkynnt, að innheimta ætti skuldina lijá fyrirtækinu C.
h.f., en þá hefði verið búið að taka það félag til gjaldþrota-
skipta og innköllunarfrestur liðinn.
1 dómsforsendunum sagði, að stefndi hefði viðurkennt
að hafa tekið við umræddum vörum. Reikningur sá, sem
stefndi hafi undirritað um móttöku varanna, væri ritaður
af stefnda. Stefndi hafi ekki sannað, að hann hafi gert
fyrirsvarsmanni stefnanda ljóst, eða að fyrirsvarsmanni
stefnanda hafi mátt vera ljóst, að þrátt fyrir þetta kæmi
stefndi fram i viðskiptum sínum fyrir hönd fyrirtækisins
C. h.f. Ekki hafi stefndi heldur sannað, að síðar hefði
komið fram viðurkenning af hálfu stefnanda á því, að
úttekt þessi hefði verið gerð í nafni fyrirtækisins C. h.f.
128
Tímarit lögfræðinga