Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Side 45
Var því stefndi persónulega dæmdur til greiðslu stefnu-
kröfunnar ásamt vöxtum og málskostnaði.
(Dómur 15. desember 1965).
Endurkrafa barnsmeðlags — fyrning.
Bæjarsjóður K.-kaupstaðar höfðaði mál gegn E. til
greiðslu skuldar að fjárhæð kr. 288,668,00 með 8% árs-
vöxtum frá 1. janúar 1964 til greiðsludags auk málskostn-
aðar að skaðlausu. Ennfremur krafðist stefnandi staðfest-
ingar á kyrrsetningargerð, er gerð hafi verið í bifreið
stefnda.
Hina umstefndu skuld kvað stefnandi vera ógreiddar
meðlagsskuldir, er stefnda hafi borið að greiða barnsmóð-
ur sinni, vegna barna þeirra, á tímabilinu 1953 til 1963 að
báðum árum meðtöldum. Hafi Tryggingastofnun ríkisins
greitt barnsmóður stefnda meðlag þetta og síðar endur-
krafið framfærslusveit stefnda, K.-kaupstað, um fé þetta,
skv. 54. gr. framfærslulaganna nr. 80/1947.
Stefna í umræddu máli var birt 27. júní 1964 og áður-
nefnd kyrrsetningargerð fór fram 26. júní 1964.
1 reikningsyfirliti, sem stefnandi lagði fram í málinu,
kom fram, að stefndi hafði greitt nokkurt meðlag á árun-
um 1956, 1957 og 1958 og höfðu þær fjárhæðir verið
dregnar frá, áður en stefnufjárhæð var ákveðin.
Stefndi hafði látið sækja þing í máli þessu og látið
leggja fram greinargerð. Síðan féll þingsókn niður af hans
hálfu. I greinargerð stefnda gerði hann þær dómkröfur,
að hann yrði aðeins dæmdur til að greiða slefnanda kr.
126,826,00 með 7% ársvöxtum frá 26. júní 1964 til 30.
desember 1964 og 6% ársvöxtum frá þeim degi til greiðslu-
dags. Lækkunarkröfu sína byggði stefndi á því, að allar
kröfur stefnanda, sem eldri væru en fjögurra ára, væru
niðurfallnar vegna fyrningar. Hér væri um tímabilsgreiðsl-
ur að ræða, meðlög, er fyrntust á fjórum árum. Að því er
vaxtakröfu varðaði kvaðst stefndi miða við gildandi regl-
ur.
Tímarit lögfræðinga
129