Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Side 17

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Side 17
í rétt lögð, á sókn sakar og réttarkröfur að hlýða, til sakar að svara og dóm að þola í framangi-einda átt“, hann hugsar eflaust oft á þá leið, að þetta sé utan og ofan við sinn skilning, utan við sinn sjóndeildar- hring, og því þjóni það engum tilgangi að mæta. Hér má minna á þann fjölda einkamála, þar sem stefndi mætir ekki, þó að ýmsum vörnum hefði mátt við koma. Þessi að mínum dómi óeðlilegu og stífu sam- skipti milli dómara og aðila eða vitna, eru hugsanlega yfirfærð á lög- menn og lögfræðinga, því að allt er þetta lögfræði. Þannig má ætla, að viss hópur manna sé í varnarstöðu gagnvart lögfræði og lögfræð- ingum og óski ekki eftir ýkja nánum samskiptum við þá. í þriðja lagi var nefndur sá möguleikí, að almenningur hafi van- traust á lögfræðingum. Sé svo, leitar fólk að sjálfsögðu ekki á náðir þeirra, nema af illri nauðsyn. Ekki skal ég um það dæma, hvort slíks vantrausts gætir að ráði, en auðvitað er meðal lögfræðinga sem ann- ars staðar misjafn sauður í mörgu fé, og oft þarf ekki mikið útaf að bera, til að setja blett á allan hópinn. En seinagangur í meðferð dóms- mála á án efa stóran þátt í tregðu fólks til að leita lögfræðiaðstoðar. Sú staðreynd er einnig kunn, að margir lögmenn eru mjög önnum kafnir, og slíkum mönnum hættir á stundum til að taka að sér fleiri verkefni en þeir geta með góðu móti sinnt. í hvers þágu starfa lögfræðingar? Sú spurning hlýtur einnig að vakna, hvort lögfræðingar kæra sig yfirleitt um of mikil samskipti við hinn almenna borgara, hvort þeir kjósa ekki fremur að starfa í þágu ýmissa annarra aðila í þjóðfélaginu. Prófessor dr. jur. Ole Krarup skrifaði fyrir nokkru grein í danska blaðið Politiken, sem hann nefndi „Retfærdighedens sociale slagside". Þar telur hann, að 90% af starfandi lögmönnum í Danmörku noti 90% af vinnutíma sínum til þess að þjóna 10% þjóðarinnar, þ. e. a. s. at- vinnurekendum og fjármálaspekúlöntu'm. Og síðan spyr hann: „Hvern- ig í ósköpunum fara háskólarnir að því að umturna hugsun fólks svo rækilega, að lögfræðingar geta lifað í trú á jafnrétti, frelsi og pólitískt hlutleysi, á sama tíma og þeir stuðla að ójafnrétti, ófrelsi og pólitísku óréttlæti í starfi sínu?“ Síðar í grein sinni lætur próf. Ole Krarup að því liggja, að starf danskra lögmanna felist í því að vernda hagsmuni hinna sterku gegn hagsmunum hinna veiku, þ. e. a. s. hagsmuni at- vinnurekenda gegn verkamönnum og hagsmuni viðskiptalífsins gegn neytendum. Sé þetta mat prófessorsins á rökum reist, hlýtur að vakna sú spurning, hvort svipað sé uppi á teningnum hér á landi. Ef frá eru taldir þeir lögfræðingar, sem starfa hjá því opinbera, má ætla, að 15

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.