Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Side 30
inganna, sérstaklega hvernig einstaka gjaldliðir varðandi Tímarit lögfræðinga
eru færðir í reikninga félagsins, án þess að fullkomin grein sé gerð fyrir
fjármálum tímaritsins á aðalfundi. Var það mál manna, að rétt væri að leggja
fram á aðalfundi sérstaka heildarreikninga tímaritsins.
Til máls tóku: Björn Þ. Guðmundsson, Bjarni K. Bjarnason, Þorvaldur
Grétar Einarsson, Ólafur W. Stefánsson og Ragnar Aðalsteinsson, auk stjórn-
armanna.
Fór þá fram stjórnarkjör. Af fráfarandi stjórnarmönnum gáfu þeir Knútur
Bruun og Hrafn Bragason ekki kost á sér til endurkjörs. Þá gáfu Biarni K.
Bjarnason og Hallvarður Einvarðsson ekki kost á sér til endurkjörs í fulltrúa-
ráð BHM. Þessir hlutu kosningu: Þór Vilhjálmsson var endurkjörinn formaður
og Jónatan Þórmundsson endurkjörinn varaformaður. Aðrir í stjórn voru kjörn-
ir: Hjalti Zóphóníasson, Stefán Már Stefánsson, Skúli Pálsson, Othar Örn
Petersen og Þorvaldur Grétar Einarsson. i varastjórn voru kjörin: Magnús
Thoroddsen, Þórir Oddsson, Gunnlaugur Claessen, Hrafn Bragason, Snjó-
laug Briem, Knútur Bruun og Jón Ólafsson. Endurskoðendur voru kosnir:
Ragnar Ólafsson og Árni Björnsson. Til vara: Helgi V. Jónsson og Sigurður
Baldursson.
i fulltrúaráð BHM voru kosnir: Ragnar Aðalsteinsson, Magnús Thoroddsen
og Þór Vilhjálmsson. Til vara: Þorleifur Pálsson, Bjarni K. Bjarnason og Hall-
varður Einvarðsson.
Þá var lögð fram tillaga til breytinga á lögum félagsins, en hún er í því
fólgin, að stofnuð verði sérstök kjaramáladeild ríkisstarfsmanna innan félags-
ins. Formaður gerði grein fyrir þessum breytingum og gat þess, að líklega
yrði í framtíðinni að breyta skipulagi félagsins, þannig að það verði fremur
bandalag ýmissa sérfélaga lögfræðinga en féiag með beinni aðild félags-
manna. Þar sem ekki sóttu nægilega margir aðalfund þennan, svo að hann
mætti breyta lögum, var honum frestað.
Hrafn Bragason
28