Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Page 12

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Page 12
Garðar Gíslason: HVAÐ ER RÉTTARRÍKI OG HVERJIR ERU KOSTIR ÞESS? l. Réttarríki er vinsælt hugtak, svo vinsælt, að menn eru farnir að láta það ná yfir nánast allt sem á að vera gott og æskilegt í stjórnskipun og lögum. Þessvegna þarf að staldra við og skoða hvað eiginlega í því felst. Oft er sagt, að réttarríki sé það ástand mála þegar réttarkerfi er lagalega séð í góðu standi, heilbrigðu ásigkomulagi. Sumir nota líkingu við hníf, sem er beittur, vel brýndur. Það er góður hnífur, ástand hnífs- ins er gott, auðvelt að skera með honum. En þá er einnig auðvelt að nota hann til illverka. Á þá samlíkingin við um lögin? Við þurfum að byrja á nokkrum grundvallarhugtökum, og skýra þau, til þess að nálgast viðfangsefnið: ríki, stjórnskipun, þvingunarvald, lög og réttur, réttarkerfi. Segja má að ríki verði til þegar menn á tilteknu landsvæði hafa komið sér saman um aðferð til þess að taka ákvarðanir í málum sem varða samfélagið allt, heildina, og setja niður deilur manna, og ákveðið enn- fremur að gefa slíkum ákvörðunum vald með sérstöku þvingunarvaldi. Þannig séð er ríkið stjórnunarstofnun samfélags, á svipaðan hátt og venjuleg félög hafa stjórnir og aðalfundi. Ríkið er stofnað þegar á- kveðnar eru grundvallarreglur um stjórn samfélagsins og skipulag, og þessar grundvallarreglur kallast einu nafni stjórnskipun ríkisins. Þær segja til um hverjir fari með æðsta vald í málefnum ríkisins, hvernig þeir öðlist vald sitt, hver sé réttarstaða þeirra, með hverjum hætti ríkis- valdið sé skipulagsbundið, og hverjar hömlur séu settar ríkisvaldinu. Þegar litið er á ríkið sem stjórnarstofnun samfélagsins, þá er spurt hvað sé góð stjórn? Sagt er að vel sé stjórnað, og það sé góð stjórn, sem stjórni með hag samfélagsins og heildarinnar fyrir augum, og þégar menn fá notið grundvallarlífsgæða. Þetta felur í sér, að unnt sé að stjórna illa á tvennan hátt. Harðstjórn er t.d. vond stjórn ,og hún getur komið fram ýmist þegar stjórnendur arðræna í þeim skilningi, að stjórnendur mata eigin krók án tillits til annarra, eða sem öfgakennt 66

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.