Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Blaðsíða 37
þar sem hann telur eiga að dæma „fullan“ málskostnað. Verður dóm-
arinn þá að hafa í huga, að málsaðili, sem fær sér tildæmdan málskostn-
að, er skuldbundinn lögmanni sínum skv. ákvæðum gjaldskrárinnar, og
þarf þá væntanlega að greiða sjálfur þann hluta kostnaðarins, sem hann
ekki fær úr hendi gagnaðila síns.
VANDAMÁL VEGNA VERÐBÓLGU
Ég hefi nú eytt nokkrum tíma í að ræða almennt um réttarreglur er
varða málskostnað, skiptingu hans milli aðila dómsmáls og þýðingu lág-
marksgjaldskrár LMFÍ í því sambandi. Þetta taldi ég nauðsynlegt að
gera áður en ég tæki að ræða um hin sérstöku vandamál sem af verð-
bólgunni stafa, þegar dæmt er um málskostnað milli aðila. Nú mun ég
hins vegar víkja að þeim.
Þau vandamál sem verðbólgan veldur á þessu sviði eru að mínu mati
einkum þrenns konar:
a) Höfuðstólsfjárhæð dómkröfu rýrnar að raungildi.
b) Útlagður kostnaður í dómsmáli hefur verið greiddur með verð-
meiri krónum en gilda við dómsuppsöguna.
c) Málskostnaðarfjárhæð rýrnar eftir dómsuppsögu.
HÖFUÐSTÓLSFJÁRHÆÐ RYRNAR
1 málum þar sem krafizt er aðfarardóms um tiltekna peningakröfu
sem gjaldfallið hefur á ákveðnum degi, lækkar raungildi höfuðstóls
kröfunnar vegna verðbólgu, eftir því sem tíminn líður. Ef málskostn-
aðurinn er aðeins reiknaður af þessum höfuðstól, hefur það þær afleið-
ingar, að málskostnaðarfjárhæðin verður lægri að raungildi eftir því
sem 1) verðbólgan er meiri og 2) krafan er eldri. Ef t.d. krafa að fjár-
hæð kr. 100.000.- gjaldfellur 1/1 1979 og er dæmd 1/1 1981 er ljóst að
málskostnaður reiknaður af kr. 100.000,- er mun hærri að raungildi þeg-
ar raungildi höfuðstólsins hefur aðeins rýrnað um 10% á ári, heldur en
þégar gildi hans hefur rýrnað um 50% á ári. M.ö.o. verður raungildi
málskostnaðarins lægra eftir því sem verðbólgustigið er hærra á tíma-
bilinu frá gjalddaga til dómsuppsögu. Að vísu hækka grunnfjárhæðir
gjaldskrár til samræmis við verðbólgu, en það er einfalt reikningsdæmi
að reikna út, að þær hækkanir eru fjarri því að brúa bilið. Til að fá jafn-
háan málskostnað að raungildi þarf hvort tveggja að hækka til jafns við
verðbólguna, grunnfjárhæðir gjaldskrár og fjárhæðin, sem reiknað er
af. Og eftir því sem krafan er eldri, verður raunvirði málskostnaðarins
lægi’a, þ.e.a.s. miðað við hvert raungildi kröfunnar var er hún gjaldféll.