Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Qupperneq 41

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Qupperneq 41
Frá Lögmaiutafélagi íslands AÐALFUNDUR 1982 Aðalfundur Lögmannafélags íslands var haldinn 25. mars s.l. Formaður, Jóhann H. Nlelsson hrl., minntist í upphafi látinna félagsmanna, þeirra: Ragn- ars Ólafssonar hrl., Kristjáns Guðlaugssonar hrl., Jónasar Thoroddsen hrl. og Ingólfs Jónssonar hrl. Fundarmenn risu úr sætum til að votta hinum látnu félögum virðingu sína. Á starfsárinu voru haldnir fimm almennir félagsfundir: Hinn 3. september var hádegisverðarfundur í Þingholti. Baldur Guðlaugsson hrl. flutti þar erindi um dráttarvexti. Þessi fundur var fjölsóttur, enda um áhugavert málefni að ræða. 14. september var haldinn sameiginlegur fundur með lagadeild Háskóla íslands og Dómarafélagi Reykjavíkur. Dr. Guðmundur Alfreðsson þjóðréttar- fræðingur flutti þar erindi um réttarstöðu Grænlands. Þessi fundur var þokka- lega sóttur, þótt ekki væri margt lögmanna á fundinum. 12. nóvember var há- degisverðarfundur í Þingholti, þar sem Jón E. Ragnarsson hrl. flutti erindi sem hann nefndi: Nokkur atriði varðandi málskostnað í einkamálum. Enn var haldinn hádegisverðarfundur í Þingholti 28. janúar. Á dagskrá voru félags- mál L.M.F.Í. Formaður félagsins rakti helstu störf stjórnarinnar og hvað fram- undan væri. Síðasti fundur á starfsárinu var 17. mars, og var það almennur félagsfundur, sem haldinn var I húsakynnum félagsins að Álftamýri 9. Á dag- skrá voru tölvumál lögmanna. Alls voru því á starfsárinu haldnir 4 félagsfund- ir á vegum L.M.F.Í. og 1 í samvinnu við aðra. Félaginu bárust 29 erindi, þar sem stjórnin var beðin umsagnar um leyfis- umsóknir til málflutnings fyrir héraðsdómi. Stjórnin mælti með 16 umsóknum og ákvað að mæla ekki gegn 11 umsóknum, en þar var um aðila að ræða I opinberu starfi, sem ber að deponera leyfum slnum á meðan þeir gegna op- inberu starfi. Stjórnin mælti á móti 2 umsóknum. Nýir félagar frá síðasta aðalfundi eru 24, þar af 20 vegna útgefinna leyfa til málflutnings fyrir héraðsdómi. Fjórir leystu til sín réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi og voru þar með teknr á félagaskrá L.M.F.Í. Frá síðasta aðalfundi hafa 4 héraðsdómslögmenn fengið réttindi til mál- flutnings fyrir Hæstarétti. Af félagskrá hafa fallið 9, þar af hefur einn depo- nerað leyfi sínu, 3 hafa látist eins og áður segir og 5 hafa fallið af félagaskrá af öðrum orsökum. Félagar eru nú alls 264, þar af 115 hæstaréttarlögmenn og 149 héraðsdóms- lögmenn. Heiðursfélagi er Rannveig Þorsteinsdóttir hrl. Af félagsmönnum eru nú alls 12 hæstaréttarlögmenn 70 ára og eldri. 95
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.