Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Blaðsíða 16

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Blaðsíða 16
réttarþróun ríkisins heldur einnig í þeim málum sem eru flókin í nteðferð eða þeim sent dómarar álíta eftir yfirlestur að kunni að vera ranglega dæmd efnislega. Hér ætti því að vera urn að ræða einhvers konar „summariska" meðferð. Vafasamt er aftur á móti að fyrirskipa rökstuðning synjunar unt áfrýjunarleyfi, því rökstuðningurinn getur tekið langan tíma. Leyfisveitingu þarf af augljósum ástæöunr ekki að rökstyðja. Það getur sýnst réttlátast að láta alla sækja um áfrýjunarleyfi, en mörg mál bera það með sér að leyfi er óþarft, mikilvægi þeirra er slíkt, og því óþarft að sækja sérstaklega unt leyfi. Önnur mál eru, eins og áður er sagt. of einföld fvrir endurtekna meðferð. Verður að kosta kapps um að láta áfrýjunardómstólinn sleppa við leyfismeðferð vegna þessara mála. Þar sem fjárhæð segir ekki alltaf til um mikilvægi mála gæti verið gott ef hægt væri að miða við eitthvað annað en áfrýjunarfjárhæð. Sjálfsagt erað geraeinhverjartilrauniríþáátten líkasttilmun það ganga illa upp og verður því að miða við hæfilega fjárhæð sem, eins og gert er í sumum ríkjanna, getur svarað til fjárhæða í félagsmálalöggjöf. Þetta þarf þó ekki endilega að gera, því sé leyfismeðferðin nokkuð vönduð á réttarörygginu að vera nægjanlega borgið. VI. Ýmsum mun þykja sem nokkurs frjálslyndisgæti í þessu erindi til viðfangsefn- isins, ekki sé tekið nægjanlegt tillit til réttaröryggisins. Því er til að svara að hér vega salt réttindi þeirra senr hafa tapað máli á lægra dómstigi og hinna sem þar höfðu betur. Þá skiptir hér máli mat á því hvernig á að skipta tekjum ríkjanna. Þeir fjármunir sem eyða má til dómsmála eru takmarkaðir og þeim verður að eyða á þann hátt sem kemur þjóðfélaginu í heild til góða án þess þó að réttur einstaklingsins verði borinn fyrir borð. Það dómstólakerfi sem hvert ríki um sig gefur kost á verður að ráða við þann málafjölda sem að berst. Réttarkerfi sem gerir það ekki er réttarörygginu miklu hættulegra en það sem takmarkar í einhverju rétt til endurskoðunar dómsúrlausna. 152
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.