Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Blaðsíða 19
2 e Ábyrgðarsjóður LMFÍ
Sérstakur ábyrgðarsjóður er starfræktur á vegum Lögmannafélags Islands. Ur
sjóðnum er heimilt að greiða bætur til skjólstæðings sem hefur orðið fyrir tjóni
vegna fjárþrots lögmanns. Skilyrði bótaskyldunnar er að það fé, sem lögmaður-
inn skuldar skjólstæðingnum, hafi komist í vörslur lögmannsins í tengslum við
lögmannsstarf hans fyrir skjólstæðinginn. Vegna áfalla sem sjóðurinn hefur
orðið fyrir á allra síðustu árum er staða hans mjög veik og miklar umræður eru
innan félagsins um framtíð hans. Sýnist sitt hverjum um hvort rétt sé að halda
áfram starfrækslu sérstaks ábyrgðarsjóðs vegna fjárþrota lögmanna.
2 / Engin almenn lög um skaðabœtur
A Islandi hafa ekki verið sett lög um skaðabætur eins og annars staðar á
Norðurlöndum. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til skaðabótalaga þannig að
líklegt er að þess sé skammt að bíða að slík lög taki gildi. íslenskur skaðabóta-
réttur er því í ríkum mæli byggður á fræðikenningum og úrlausnunt dómstóla. Af
þessu leiðir m.a. að ólíkt því sem gildir annars staðar á Norðurlöndum er á
íslandi ekki almenn heimild til þess að lækka skaðabætur með tilliti til aðstæðna
tjónvalds.
2 g Frjálst rekstrarform á lögmannsstarfsemi
íslenskir lögmenn geta valið hvaða rekstrarform sem er fyrir starfsemi sína.
Flestir lögmenn reka lögmannsstofur án ábyrgðartakmörkunar. Á síðustu árum
hefur þó fjölgað hlutafélögum sem reka lögmannsstofur. Engar sérstakar
lagareglur eru um hverjir geti átt hlut í slíkum félögum eða hverjir geti setið í
stjórn þeirra.
2 h Sérreglur um ábyrgð fasteignasala og verðbréfamiðlara
Rétt er að geta þess að sérstakar lagareglur gilda um starfsemi fasteignasala og
verðbréfamiðlara. Þótt ýmsir lögmenn sinni slíkum störfum er í þessari ritgerð
litið fram hjá sérreglunum um ábyrgð fasteignasala og verðbréfamiðlara í
umfjöllun um skaðabótaábyrgð lögmanna.
3 EINKENNI LÖGMANNSÁBYRGÐAR
Með lögmannsábyrgð er venjulega einungis átt við ábyrgð vegna hreins
fjártjóns, þ.e. tjóns sem hvorki verður talið til líkamsmeiðsla né til skemmda á
eignum. Valdi lögmaður, meðan hann er í starfi, öðrum manni tjóni á eignum
hans eða líkama gilda venjulegar ábyrgðarreglur skaðabótaréttarins.
Þá einkennist lögmannsábyrgðin af því, að lögmaðurinn hefur með samningi
tekið að sér vissa þjónustu og venjulega gegn gjaldi. Samningssamband lög-
mannsins og skjólstæðingsins veldur því, að um bótaábyrgð lögmannsins
155