Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Qupperneq 35

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Qupperneq 35
Hæstaréttar leystu þau ekki. I þeim má að sjálfsögðu jákvæðar breytingar finna svo sem sameiningu dómstólanna í Reykjavík, sem koma mátti á með breytingu á fáeinum lagagreinum. Að flestu öðru leyti óþörf og ekki til bóta, svo sem um sameiningu dómstólanna í kjördæmunum utan Reykjavíkur. Að sumu leyti beinlínis skaðleg, því að það er þessi nýja lagasetning sem nú torveldar og stendur því í vegi að komið verði á millidómstigi og vandi Hæstaréttar leystur til frambúðar á viðunandi hátt. Mér er sagt að nú fari fram örvæntingarfull leit að úrræðum til að bæta að einhverju leyti þann skaða sem þarna var unninn og grynnka á vandanum í Hæstarétti. Margt mun hafa borið á góma í þeim umræðum og þó einkum að þrengja málskotsréttinn stórlega. Hverfa að hluta frá þeirri meginreglu réttar- fars að málsskotsréttur skuli vera fyrir hendi. Hækka í því skyni áfrýjunarfjár- hæð stórlega t.d. í 500 eða jafnvel 750 þúsund. Losa Hæstarétt við sönnunarmat í opinberum málum, en dæma þau í staðinn tvisvar í héraði. Fyrst af einum dómara og síðan af þrernur. Ég þykist vita að mörgum hér þyki þetta hljóma undarlega. En svona lagað getur mönnum dottið í hug þegar búið er að sigla öllu í strand. Hvort lagafrumvarp verður lagt fram á haustdögum og hvers efnis kemur í Ijós. Það er erfitt að byggja gott hús eftir vondri teikningu. Mín skoðun er sú að allt þetta megi vissulega ræða. Það er ekkert vafamál að málsmeðferðina í Hæstarétti má mikið laga án þess að svo þýðingarmikil grunnregla sem rúmur málsskotaréttur til æðra dómstigs sé stórlega skert. En hvort sem málið verður rætt lengur eða skemur, þá vil ég taka undir þá skoðun sem nú vex fylgi, að eina raunhæfa frambúðarlausnin sé millidómstig. Þótt búið sé að klúðra málinu í bili, þá mega menn ekki missa kjarkinn. Úr því sem komið er verður sjálfsagt að róa innan skerja enn í nokkur ár og notast við misgóðar bráðabirgðalausnir. En við skulum reyna að koma kompásnum í lag sem fyrst og vera við því búnir að vinda upp segl þegar byr gefur og stefna á millidómstigið. Nú þegar menn eru búnir að reka sig á ættum við að geta Iátið gamlar deilur niður falla og sameinast um Lögréttuna, hún er eina nothæfa frambúðarlausnin. 171

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.