Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Page 28
Lögmannafélagi íslands í október 1992 taldi hann að lögmaður sem gengi til
uppgjörs á grundvelli verklagsreglnanna ætti á hættu að verða bótaskyldur
gagnvart untbjóðanda sínunt, nema hann tryggði sér sönnun á því að hann hefði
gert eftirfarandi:
1. Utlistað gildandi réttarreglur um bótaábyrgð og uppgjör skaðabóta og
hverrar fjárhæðar tjónþoli gæti vænst í skaðabætur miðað við uppgjör á
grundvelli gildandi réttar;
2. útlistað verklagsreglurnar fyrir umbjóðanda sínum efnislega og tilefni þess
að vátryggingafélögin byrjuðu að beita þeim. Þá yrði hann að útlista
réttarlegt gildi þeirra;
3. tryggt eins og unnt væri að tjónþolinn skildi þessi tvö kerfi og í hverju
munurinn á þeim fælist;
4. tryggt að tjónþolinn skildi að með því að ganga til uppgjörs væri hann fyrir
fullt og allt að afsala sér rétti til hærri skaðabóta síðar.
Niðurstaða Viðars Más var sú að það væri andstætt starfsskyldum lögmanns
gagnvart skjólstæðingi sínum að ganga til uppgjörs skaðabóta á grundvelli
verklagsreglnanna, nema skjólstæðingurinn hefði af einhverjum ástæðum falið
honum að ganga til slíks uppgjörs að fenginni þeirri ráðgjöf sem að framan er
lýst.
Eg er sammála framangreindum niðurstöðum og tel reyndar að þær hafi
almennt gildi um það hvernig góðum og gegnum lögmanni beri að standa að
samningum fyrir hönd skjólstæðinga sinna þegar verið að falla frá hluta þeirra
krafna sem skjólstæðingurinn kynni að eiga.
8 c Ábyrgð á framkvæmd einstakra starfa.
Ef lögmaður lætur hjá líða að framkvæma einstök verk, sem hann hefur tekið
að sér, ber hann ábyrgð gagnvart skjólstæðingi sínum á tjóni sem af því hlýst.
Þettagildirt.d. ef hann gleymirað Iýsa kröfu íbú, lætur hjálíða að þinglýsaskjali
eða farast fyrir að mæta í þinghaldi þannig að réttarspjöll verða af.
Almennt má segja að lögmaður beri ábyrgð gagnvart skjólstæðingi sínum ef
hann lætur hjá líða að vinna verk sem hann hefur tekið að sér. Sama gildir ef
hann ætti að vinna verkið samkvæmt góðum lögmannssiðum, þótt skjólstæðing-
ur hafi ekki berum orðunt falið honum það. Nefna má sent dæmi að lögmaður.
sem aðstoðar kaupanda fasteignar, kannar ekki heimildir seljanda til eignarinn-
ar og síðar kemur í ljós að eignin er yfirveðsett, á henni eru kvaðir eða
eignarheimild seljanda skortir.
164