Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Blaðsíða 38

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Blaðsíða 38
sem fyrri stjórn hefði skipulagt og þeim hefði lokið í maí 1992. í samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands hefði L.M.F.Í. tekið þátt í að skipu- leggja námsskeið um lestur og greining ársreikninga, um skýrslur aðila og vitna fyrir dónri. um megineinkenni réttarreglna EB og EES og um samkeppnisreglur EB og EES. Síðast töldu þrjú námskeiðin hefðu verið haldin fyrir frumkvæði nýstofnaðrar fræðslunefndar L.M.F.Í. Næst greindi formaðurinn frá alþjóðlegum samskiptum. Að því er varðaði norrænt samstarf hefði forsætisfundur verið haldinn í Kaupmannahöfn í septem- ber 1992 og hefðu 3 stjórnarmenn tekið þátt í honum. Þar hefði m.a. verið samþykkt ályktun til stjórnvalda á Norðurlöndum um þörf nýrra reglna unr opinbera réttaraðstoð og væri fyrirhugað að koma því máli á framfæri við ráðherra af alefli. Framkvæmdastjórar norrænu lögmannafélaganna hefðu átt fund í Helsinki 15. febrúar 1993 og hefði þar verið rætt um dagskrá næsta forsætisfundar á íslandi í september n.k. Þátttaka norrænu lögmannafélaganna í Ráði lögmannafélaga í Evrópubandalagslöndunum - CCBE - hefði verið ofarlega á baugi eins og jafnan væri á norrænum lögmannafélagafundum. Að því er varðaði önnur erlend samskipti hefði hann sótt fundi IBA í Lissabon og Cannes. Hinn portúgalski formaður CCBE hefði boðið sér að koma á fund CCBE í Lissabon dagana 22. - 26. október 1992 sem áheyrnarfulltrúa. Hefði honum verið tekið vel og hefði forysta CCBE sýnt mikinn áhuga á þátttöku L.M.F.Í. í starfi samtakanna. Pá hefði hann tekið þátt í sameiginlegum fundi forystumanna IBA og CCBE í Vín hinn 18. janúar sl. og í 21. ráðstefnu formanna evrópskra lögmannafélaga í Vín 19. - 20. janúar. Formaðurinn greindi frá störfum gjaldskrárnefndar L.M.F.I. og stjórnar Námssjóðs L.M.F.Í. Kvað hann stjórn Námssjóðsins hafa ákveðið að breyta að nokkru leyti úthlutunarstefnu sinni vegna minnkandi tekna sjóðsins. Meiri áhersla yrði lögð á styrki til útgáfustarfsemi á sviði lögfræðinnar og annarrar slíkrar starfsemi, sem kæmi að almennari notum fyrir lögmenn, en hætt yrði að verulegu eða öllu Ieyti að styrkja einstaka félagsmenn til farar á ráðstefnur, námsskeið og í framhaldsnám erlendis. Formaðurinn sagði síðan að stjórn félagsins hefði stofnað fræðslunefnd og sett henni starfsreglur. Nefndina skipuðu Andri Árnason, Þórunn Guðmundsdóttir og Ingólfur Hjartarson. Hlutverk hennar væri að stuðla að aukinni menntun lögmanna m.a. með námskeiðahaldi. Formaðurinn reifaði ýmis atriði er varða félagið og félagsmenn, svo sem viðræður við dómsmálaráðuneytið um þóknun til lögmanna fyrir réttargæslu- störf og varnir í opinberum málum, verklagsreglur tryggingafélaganna, nýju samkeppnislögin, annmarka á framkvæmd aðfararbeiðna, endurskoðun mál- flytjendalaganna, gerð sjónvarpsþátta um lögfræðileg atriði o.fl. Formaðurinn vék næst að CCBE. Gerði hann nokkra grein fyrir starfi og 174
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.