Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Page 71
DÓMSMÁLAÞING 1993
Dómsmálaþing var haldið, fimmtudaginn 11. og föstudaginn 12. nóvember
1993 að Hótel Sögu í Reykjavík. Ólafur Walter Stefánsson, skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu, setti flutti þingsetningarræðu, skipaði Jón ísberg sýslu-
mann fundarstjóra og Ólaf Stefán Sigurðsson sýslumann fundarritara.
Ávörp
Þingið hófst með ávörpum Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra, Halldórs
Þ. Jónssonar sýslumanns, formanns Sýslumannafélagsins og Valtýs Sigurðs-
sonar héraðsdómara, formanns Dómarafélags íslands. Þorsteinn ræddi ýmis
mál dómarastéttarinnar og umbætur varðandi dómstóla og réttarfar sem
ígrunduð eru um þessar mundir. Þá vék hann að sýslumönnum og sýslumanns-
embættum, en þar eru ýmsar fyrirætlanir í deiglunni eins og kunnugt er, bæði
að því er varðarí umdæmismörk embættanna og hugsanlega aukning verkefna
þeirra.
Dómsmálaráðherra fjallaði nokkuð ýtarlega um málefni Hæstaréttar en þar
er málum þannig komið, að þrátt fyrir verulega aukin afköst, tekur lengri tíma
en áður að fá úrlausn réttarins, ef eitthvað er. Taldi ráðherra nú vera lag til
að bæta stöðu Hæstaréttar, en mikilvægt að ná sem víðtækastri samstöðu um
umbætur.
Þorsteinn fagnaði því samstarfi dómara og sýslumanna sem tekist hefði með
sameiginlegu dómsmálaþingi og þakkaði fyrir það tækifæri sem sér gæfist til
að ávarpa þingfulltrúa.
Næst fluttu formenn Dómarafélagsins og Sýslumannafélagsins ávörp og
greindu frá aðalfundum félaganna. Halldór vék nokkuð að innri málefnum
sýslumannsembættanna og þeim umbrotum sem eru þar, greindi frá umræðum
um drög að frumvarpi til laga um lögreglumálefni og að á næsta ári ætti félag
sýslumanna merkisafmæli, yrði þá 70 ára.
Valtýr ræddi málefni dómstóla almennt, réttarfarsmálefni og dómstóla-
skipan. Lýsti hann ýmsum skoðunum varðandi héraðsdómsstigið svo og
áfrýjunarstigið, einkurn hugsanlega kosti og ókosti þess að koma á millidóms-
69