Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Síða 12

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Síða 12
frá ríki til ríkis og einnig innra skipulag dómstólanna. Koma mér í hug þau orð sem skrifstofustjórinn í Héraðsdómi Fíladelfíu lét falla þegar ég sagðist aðeins vera að byrja að átta mig á skipulagi dómstólsins en þau voru: „láttu okkur vita þegar þú hefur skilið skipulagið því að það gerum við ekki“. Þegar Bandaríki Norður Ameríku voru að verða til og mótast þótti pólitísk nauðsyn að koma á fót dómstólum sem næðu til ríkjasambandsins, alrfkis- dómstólum, en talið var að með þeim hætti yrði alríkið öflugra og fastara í sessi. Þá hafði verið komið á fót dómstólum í þeim ríkjum sem að ríkja- sambandinu stóðu, en þau voru 13 talsins. Reyndar voru um þetta skiptar skoðanir og voru norðurríkjamenn (the federalists), sem studdu hugmyndina um ríkjasambandið með ráðum og dáð, fylgjandi öflugum alríkisdómstólum en suðurríkjamenn (the anti-federalists) andsnúnir, en þeir vildu að ríkin væru í lausum tengslum hvert við annað og töldu valdamikla alríkisstjóm af hinu vonda. Að því er alríkisdómstóla varðaði óttuðust þeir að með þeim yrði alríkisstjórninni fengið tæki til að kúga þegnana, líkt og breskir dómstólar hefðu gert á nýlendutímabilinu að þeirra dómi. Þegar þessar deilur voru uppi ritaði Alexander Hamilton, sem var fulltrúi New York ríkis á sameiginlegum fundum ríkjanna, eftirfarandi: „The ordinary administration of criminal and civil justice...contributes, more than any other circumstance, to impressing upon the minds of the people affection, esteem, and reverence towards the government“. Ekki er ólfklegt að sitt sýnist hverjum um það hvort fullyrðing Hamiltons stenst nú á dögum, en ekki sakar fyrir dómara og lögmenn að leggja trúnað á hana. Svo fór að lokunt að samþykkt var eftirfarandi stjómarskrárgrein: „The judicial power of the United States shall be vested in one Supreme Court, and in such inferior courts as the Congress may time from time ordain and establish. The judges, both of the Supreme and inferior courts, shall hold their offices during good behavior, and shall, at stated times, receive for their services a compensation which shall not be diminished during their continu- ance in office“. Þessi stjómarskrárgrein, sem ég treysti mér ekki til að þýða, fremur en hina fyrri tilvitnun, hefur staðið óbreytt frá því stjómarskráin var samin árið 1787 og samþykkt árið 1789. Nú um stundir eru alríkisdómstólar á héraðsdómstigi (U.S. district courts) 94 talsins í jafnmörgum lögsagnarumdæmum. Eru því í sumum ríkjum fleiri en einn alríkisdómstóll á héraðsdómstigi. Afrýjunardómstólamir (U.S. courts of appeals) eru 13 talsins og efst trónir Hæstiréttur Bandaríkjanna. Dómstigin eru því þrjú í alríkiskerfínu, en þó ekki nema að nafninu til, því að af þeim u.þ.b. 5000 málum sem skotið er árlega til Hæstaréttar Bandaríkjanna tekur hann fyrir innan við 200 mál. Eru þá talin með þau mál sem áfrýjað er frá hæstaréttum ríkjanna. Alríkisdómstólarnir hafa fyrst og fremst lögsögu í þeim málum þar sem 6

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.