Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Side 14
State Court Administration“ sem kemur í stað dómsmálaráðuneytis og „State
Court Administrator“ sem svarar til ráðuneytisstjóra að því er dómsmála-
stjómina varðar. Forseti hæstaréttar er því valdamikill maður í hverju ríki. Má
sem dæmi nefna að hann skipar alla yfirmenn dómstóla í rtkinu, án tilnefningar
eða kosninga. Hann hefur þó ekki afskipti af skipun annarra dóntara. Ekki er
allt talið, því að forsetinn setur vel flestar réttarfarsreglur, en löggjafinn í stöku
ríkjum setur þó lög sem ná til réttarfarsins. Dómstólamir hver og einn geta
einnig sett eigin réttarfarsreglur, svo fremi þær brjóti ekki í bága við réttarfars-
reglur forsetans og sett lög. Löggjafinn hefur því sáralítil afskipti af réttarfari í
hverju ríki. Hins vegar hefur löggjafinn vald á fjárveitingum til dómstólanna
að því leyti sem ríkið veitir fé til þeirra. Sveitarfélögin gera það einnig að
nokkru leyti, en að því verður vikið síðar. Forseti hæstaréttar kemur fram fyrir
hönd dómstólanna gagnvart almenningi, lögmönnum og stjómvöldum og hefur
eftirlit með stjóm og reksti þeirra. I allmörgum ríkjum (33) gefur forsetinn
löggjafarvaldinu skýrslu um stöðu dómsmála.
III. 2 Skipulag dómstólanna
Eins og fyrr segir þá er dómstólaskipunin nokkuð mismunandi frá ríki til
ríkis og getur verið það að nokkru í einstökum lögsagnarumdæmum sama
ríkis. Um ríkin má sem dæmi nefna annars vegar dómstólaskipunina í Nevada
með eina tegund héraðsdómstóla og eitt áfrýjunarstig og hins vegar í New
York ríki þar sem skipurit af dómstólakerfinu minnir helst á veðurkortið í
ríkissjónvarpinu þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir landið. Aðalreglan er
samt sem áður sú að dómstigin í okkar skilningi eru þrjú, en í 12 ríkjurn eru
þau þó tvö. Þess ber að geta að í mörgum ríkjunt er til að dreifa sérstökum
dómstólum sem fást við smærri mál og er hægt að skjóta úrlausnum þeirra
til héraðsdómstólanna. Sama málið getur því fræðilega séð farið um fjögur
dómstig, þegar þau eru fyrir hendi, en það mun vera afar fátítt. Þessir smærri
dómstólar eru kallaðir „inferior courts“, en héraðsdómstólarnir „trial courts“.
Dómhúsið i' Scmta Fé, New Mexico
8