Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Qupperneq 35

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Qupperneq 35
afskipta ákæruvalds þurfí að koma á rannsóknarstigi og fátítt er að senda þurfi málin aftur til rannsóknarlögreglu til frekari rannsóknar. Þó kemur fyrir að starfsmenn rannsóknarlögreglu leita óformlega samráðs við starfsmenn Ríkissaksóknara. Um rannsókn á brotum manna, sem eiga að baki eitt brot eða stutta brotahrinu, er það að segja að þegar fyrir liggur skýlaus játning sem studd er kærugögnum eru mál ákæruhæf þótt þau kunni síðar að sæta aðalmeðferð fyrir dómi. Þessi mál á lögregla að senda ákæruvaldi sem fyrst eftir að játning liggur fyrir. Fjöldi dóma, einkum um fíkniefnamisferli og ölvun við akstur, segja okkur að játi menn skýlaust brot fyrir lögreglu er að engu haft afturhvarf þeirra frá játningu í dómi, nema hægt sé að sýna fram á að framburður hjá lögreglu hafi verið rangur eða marktækar skýringar fáist á breyttum framburði sak- bornings. Aðalvandi starfsmanna ákæruvalds og sérstaklega lögreglu er fyrst og fremst sá, að fjöldi mála er svo mikill að erfitt kann að vera að sjá skóginn fyrir trjánum og meta hvaða mál eiga að hafa forgang. Þetta tel ég vera megin- ástæðu þess, að einföldustu málin geta dregist lengur í rannsókn en efni standa til. Þess ber þó að gæta að rannsóknaraðilar, ákæruvald og héraðsdómur verða að fá svigrúm til að meta rannsóknarþarfir og vinna þeir verk sín oft undir nokkru álagi. Flóknari og alvarlegri sakarefnin taka mikinn tíma og hafa forgang. Ef hraða á meðferð einfaldari játningarmála frá því sem nú er, tel ég einkum brýnt að af hálfu rannsóknaraðila verði reynt að flokka sérstaklega þessi mál og leggja áherslu á að þau dvelji ekki lengur hjá lögreglu en nauðsynlegt er. Það myndi einnig spara starfsmönnum Ríkissaksóknara og héraðsdómurum mikinn tíma ef hægt væri að þingfesta slfk smærri mál á ákveðnum tímum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Reynslan hefur sýnt okkur að í langflestum tilvikum hljóta þessi mál meðferð skv. 125. gr. oml. og er oft kveðinn upp dómur í þeirn strax á þingfestingardegi. Því miður er í stórum hluta játningarmála um að ræða hóp brotamanna sem eru nokkuð samfellt í brotum og láta ekki af þeim þrátt fyrir að dómur gangi í málum þeirra. Þróun undanfarandi ára er sú að brotum á almennum hegningarlögum hefur fjölgað og jafnframt hefur fjölgað að tiltölu þeim sakborningum, sem geta talist síbrotamenn. Þetta eru menn sem dómskerfið hefur sífellt til meðferðar. Rannsóknarlögreglumenn geta seint hreinsað upp mál þeirra því að ný brot bætast við áður en þeim verður komið undir lás og slá. Þótt hluta þeirra mála sem síbrotamenn eiga hjá lögreglu verði komið tiltölulega fljótt til dóms er ekki þar með sagt að lát verði á brotastarfsemi. Lagaákvæði um skilorðsbundna reynslulausn fanga hafa að vísu bætt mikið úr skák en samkvæmt reglugerð nr. 29/1993 hafa heimildir til reynslulausnar síbrotamanna verið þrengdar. Gæsluvarðhald vegna síbrota samkvæmt c lið 1. mgr. 103. gr. oml. er ekki 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.