Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Page 46
dómi. Ef ákærði hins vegar dregur í land þegar hann er kominn fyrir dóminn
eða jafnvel fellur frá fyrri játningu eru öll gögn til staðar til að setja málið í
aðalmeðferð, þá verður hægt að leiða vitni og leggja fram þau sönnunargögn
senr aflað hefur verið.
I umfjöllun um hraðari meðferð mála hljótum við að hafa í huga allan feril
málsins, bæði á rannsóknar- og ákærustigi og dómstigi, frá því að kæra kemur
fram og rannsókn hefst hjá lögreglu og þar til máli er lokið með einhverjum
hætti. Fyrst og fremst þarf að leggja áherslu á meðferðina hjá lögreglu og ég
vildi geta líkt meðferð máls hjá rannsóknarvaldinu við aðalmeðferð fyrir dómi,
á þann hátt að þegar rannsókn er byrjuð þá verði henni fram haldið í samfellu.
Fangelsismálayfirvöld þurfa einnig að koma að þessu þannig að fullnusta
dóma, hvort heldur er sektar- eða fangelsisdóma, verði lokaþátturinn í sam-
felldri meðferð málsins.
Eg er þess fullviss að vilji menn fallast á að gera breytingar, þá verði unnt
að samhæfa aðgerðir rannsóknarvalds og dómsvalds og að hraðari meðferð
játningarmála verði auðveldlega komið á, án þess að miklu þurfi að kosta til
eða breyta, nema óverulega ákvæðum gildandi laga.
40