Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Síða 21

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Síða 21
borgararéttur móður jafnt sem föður. Fram að þeim tíma gilti sú regla að skilgetin böm tóku einungis ríkisborgararétt föður en óskilgetin móður.11 Á þessa breytingu reyndi í einu máli fyrir kærunefnd jafnréttismála og er það mál rakið í kafla 4.4. Böm fædd utan hjúskapar foreldra taka samkvæmt 1. nr. 100/1952 ríkisborgararétt móður. Sú spuming hefur vaknað hvort í því felist mismunun gagnvart feðrum þessara bama. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er tilgangur laganna að koma á jafnrétti kynjanna og skv. 1. ml. 3. gr. er hvers kyns mismunun eftir kynferði óheimil. I stjómarskrá íslenska lýðveldisins er ákvæði um að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna, sbr. 2. mgr. 65. gr. Verulegar líkur eru því á að hér sé um að ræða ólögmæta mismunun gagnvart körlum. Á þetta hefur þó ekki reynt fyrir kæmnefnd eða dómstólum svo vitað sé. Staða þessara feðra er eðli málsins samkvæmt utan gildissviðs kvennasamnings Sameinuðu þjóðanna en tengist óneitanlega því misrétti sem giftar konur víða um heim sæta varðandi ríkisborgararétt bama sinna. Væntanlega hefur engin umræða verið um þetta ákvæði laga nr. 100/1952 þegar þeim var breytt á árinu 1982 og er umræðan nú dæmi um mikilvæga vakningu meðal karla um stöðu sína sem feður. Um menntun er fjallað í 10. gr. samningsins. Auk réttarins til menntunar skal konum m.a. tryggður sami réttur til verklegrar fræðslu, til sí- og endurmennt- unar, til námsstyrkja og annarrar aðstoðar í námi og stjómvöld skuldbinda sig til að útrýma hvers konar viðteknum hugmyndum um hlutverk kvenna og karla varðandi menntun sem leiða til mismununar gagnvart konum. Þá taka stjóm- völd á sig þá skyldu að endurskoða námsefni, námsáætlanir og kennsluaðferðir. Sami réttur til atvinnu, atvinnutækifæra, til starfsvals og til sömu umbunar og fríðinda fyrir vinnu er efni 11. gr. samningsins. Þar em einnig rakin ýmis atriði er snúa að félagslegum réttindum tengdum vinnu, s.s. réttinum til atvinnuleys- isbóta og almannatrygginga og sérstöðu kvenna á vinnumarkaði vegna með- göngu og fæðingar. Um réttinn til heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu er fjallað í 12. gr. og í 13. gr. um þá skyldu aðildarríkjanna að gera allar viðeigandi ráð- stafanir til þess að afnema mismunun gagnvart konum á öðmm sviðum efna- hags- og félagslífs og er þar sérstaklega nefndur jafn réttur til fjölskyldubóta, lánsfjárviðskipta og til að taka þátt í íþróttum, tómstundastarfi og menningarlífi. Á sérstöðu kvenna í dreifbýli er tekið í 14. gr. og er sú grein á ýmsan hátt til fyllingar öðmm almennum greinum samningsins einkum að því er varðar réttinn til atvinnu, menntunar, heilsugæslu og þátttöku í stefnumótun hins opin- bera. Um löghæfi er fjallað í 15. gr. samningsins og þar er m.a. að finna ákvæði um jafnan rétt kvenna og karla til að gera samninga, til að ráðstafa eignum sínum og um frelsi til að ráða dvalarstað sínum og lögheimili. I 16. gr. er síðan fjallað um skyldu aðildarríkja til að tryggja konum sama rétt og körlum til stofnunar hjúskapar, til slita og til sömu réttinda og sömu skyldna í hjúskap 11 Sjá 1. gr. laga nr. 49/1982 til breytinga á lögum nr. 100/1952 um ríkisborgararétt. 15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.