Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Page 22

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Page 22
þ.m.t. að því er varðar böm. Flestir fyrirvarar sem þjóðir heims hafa gert við einstök ákvæði samningsins em við 16. gr. hans. Sem rök fyrir þeim fyrirvörum er algengt að ríkisstjómir vísi til hefða, trúarbragða eða innlendrar löggjafar um stöðu hvors hjóna í hjúskap. Sú staðreynd að flestir fyrirvarar eru við þetta ákvæði samningsins lýsir vel því réttleysi sem konur víða um heim búa við og því valdi sem eiginmenn hafa yfir konum sínum og bömum. í kvennasamningnum er ekkert ákvæði sem leggur bann við ofbeldi gagnvart konum. CEDAW nefndin mæltist til þess árið 1989 að aðildarríkin upplýstu í skýrslum sínum til nefndarinnar um ofbeldi gagnvart konum og til hverra ráð- stafana ríkin hefðu gripið til að útrýma því ofbeldi. Nefndin gaf út leiðbeinandi reglur til aðildarríkjanna vegna skýrslugerðar þeirra árið 1991. Þar er hugtakið ofbeldi gagnvart konum eða kynbundið ofbeldi skilgreint og afmarkað og fellt að viðeigandi greinum samningsins.12 Sérstök yfirlýsing um afnám alls ofbeldis gagnvart konum var síðan samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1993. í V. kafla samningsins er síðan fjallað um framkvæmd samningsins og eftirlit með þeim ríkjum sem staðfesta hann, s.s. skýrslugerð ríkja, kjör og starfsreglur eftirlitsnefndarinnar eða CEDAW nefndarinnar eins og hún er oftast kölluð, sjá nánar kafla 4.4 hér á eftir. 4.3 Skyldur aðildarríkja Aðildarríkin takast á hendur að gera allar viðeigandi ráðstafanir á öllum svið- um samfélagsins, en þó einkum á sviði stjómmála, félagsmála, efnahags- og menningarmála, til að ábyrgjast fulla þróun og framfarir til handa konum svo að þær megi njóta jafnréttis á við karla og grundvallarfrelsis og mannréttinda, sbr. 3. gr. samningsins. í 5. til 16. gr. er síðan fjallað um þau réttindi sem tryggja skal konum, með lagasetningu og eða beinum aðgerðum. Ríkin takast á hendur að móta sér ákveðna stefnu um aðgerðir á sérhverju því sviði sem þessi ákvæði taka til og framfylgja henni án tafar. Lagt er á vald sérhvers ríkis að ákveða til hverra ráðstafana það grípur, einungis skyldan til aðgerða er ótvíræð. Islenskar konur njóta einna bestra formlegra réttinda eða lagalegra réttinda í heiminum. Gmndvallarreglan um jafnrétti kvenna og karla er tryggð í íslensku stjómarskránni og nánar útfærð í lögum nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla eins og mælt er fyrir um í a lið 2. gr. samningsins. Samningurinn kveður á um lögvemd á réttindum kvenna og að tryggja skuli fyrir lögbæmm dómstólum landsins og hjá öðmm opinberum stofnunum raun- verulega vemd til handa konum gegn hvers konar misrétti, sbr. c lið 2. gr. Miklu skiptir að dómarar þekki vel til ákvæða hans og taki mið af honum í dóm- um sínum. í því sambandi má nefna að í framhaldi af sérstakri skoðun í byrjun ársins 1996 á skýrslu íslenskra stjómvalda um framkvæmd samningsins beindi 12 Sjá general recommendation 19 of CEDAW. UN 1992. 16

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.