Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Qupperneq 26

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Qupperneq 26
lagt mat á hvort þau hafi brotið einstök ákvæði samningsins. í samningnum eru ekki ákvæði er heimila einstaklingi eða hóp að kæra ríkisstjómir til nefndar- innar vegna meintra brota á ákvæðum hans. Slíka heimild er hins vegar að finna í alþjóðasamningnum um stjómmálaleg og borgaraleg réttindi. 4.5 Túlkun samningsins Þegar kvennasamningurinn er skoðaður kemur í ljós að litlar leiðbeiningar er að finna í honum um túlkun. Það er vitanlega ekki óvenjulegt að lög eða sátt- málar sem þessir hafi ekki leiðbeiningarreglur um túlkun og þar sem túlkun laga er almennt í höndum dómstóla eða stjómvalds eftir atvikum þá mótast hjá þessum stofnunum bæði túlkunaraðferðir og þau sjónarmið sem verða ríkjandi við túlkunina. I 29. gr. samningsins segir þó að sérhverri deilu milli tveggja eða fleiri aðildarríkja varðandi túlkun eða beitingu hans, sem ekki er útkljáð með samningum, skuli að beiðni eins þeirra lögð í gerð. Hafi aðilar ekki komið sér saman um gerðardómsmeðferðina innan sex mánaða frá dagsetningu beiðnar- innar má hvor eða hver aðilanna sem er vísa deilunni til Alþjóðadómstólsins með beiðni í samræmi við samþykktir dómstólsins. Nú þegar hafa mörg ríki viðurkennt lögsögu Alþjóðadómstólsins á þessu sviði. Einn stærsti galli kvennasamningsins er að mínu mati sá að einstaklingar og hópar, sem telja rétt sinn samkvæmt samningnum brotinn, hafa engin úrræði til að leita réttar síns þar sem dómsvaldið vantar. Einnig hefur CEDAW nefndin ekki tíðkað að leggja mat á það hvort aðildarríkin hafi með aðgerðum sínum eða aðgerðaleysi brotið ákvæði samningsins. Af þessu leiðir að engin samræmd túlkun á sér stað á samningnum nema sú sem leiða má af umfjöllun og al- mennum leiðbeiningum CEDAW nefndarinnar. Þá má einnig líta á fram- kvæmdaáætlun þá sem samþykkt var á kvennaráðstefnu S.þ. í Beijing 1995 sem tæki til túlkunar. Einstök aðildamki verða því við túlkun samningsins að styðj- ast við almennar reglur þjóðaréttar um túlkun alþjóðasamninga. Má þar einkum benda á Vínarsamninginn, 31. gr., þar sem segir að alþjóðasamninga skuli túlka í samræmi við tilgang þeirra og markmið. Sem dæmi um beitingu slíkrar túlk- unar má nefna bæði túlkanir Mannréttindadómstóls Evrópu á Mannréttinda- sáttmála Evrópu og túlkanir Evrópudómstólsins á evrópuréttinum en báðir þessir dómstólar em þekktir fyrir tilvísanir í markmið og tilgang við túlkun þeirra sáttmála sem þeir fjalla um í dómum sínum. Kvennasamningurinn hefst á því að tilgreind eru helstu sjónarmið sem að baki honum búa og er því sjálfsagt að túlka samninginn sem og jafnréttislög í samræmi við þau sjónarmið. Má þar nefna að gengið er út frá því sem staðreynd að konur séu misrétti beittar og að því misrétti beri að útrýma með öllum tiltæk- um ráðum, að mismunun gagnvart konum brjóti í bága við grundvallarreglur um jafnrétti og virðingu fyrir manngildi, að velferð í heiminum og málstaður friðar krefjist þátttöku kvenna, að ríkin séu þess meðvitandi að bamsfæðingar- hlutverk kvenna skuli ekki vera undirrót misréttis gegn þeim og síðast ui ekki síst að breytinga sé þörf á hinu hefðbundna hlutverki karla og kvenna í þjóðfé- 20
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.