Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Page 57

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Page 57
þeirra hagsmuna, sem íslenskir ríkisborgarar eiga í hafalmenningum við landið. Með lagasetningunni er ríkisvaldið fyrst og fremst að leitast við að gegna þeirri skyldu sinni að reyna að tryggja, að nýting auðlindarinnar komi þjóðarheildinni sem mest til góða. Annað mál er svo það, hvemig til hefur tekist við þá lagasetningu, sem nú er í gildi. Umræðan í þjóðfélaginu síðustu misserin bendir til þess, að þar sýnist sitt hverjum. 8. HVAÐA ÞÝÐINGU HEFUR FYRIRVARI 3. MÁLSL. 1. GR. FISKVEIÐISTJÓRNUNARLAGANNA? í 3. málsl. 1. gr. fiskveiðistjómunarlaganna segir, að úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þeim lögum myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildunum. Þessu ákvæði var bætt inn í framvarp til laganna við meðferð þess á Alþingi. Var það gert til áréttingar þeim ummælum, sem fram koma í athugasemdum við 1. gr. frumvarpsins í upphaflegri gerð þess, en þar sagði svo: Enda þótt frumvarpið byggi á því, að fiskistofnamir verði skynsamlegast nýttir með því að fela þeim, sem daglega starfa að fiskveiðum víðtækt ákvörðunarvald í þessum efnum, má það ekki verða til þess, að með því verði talið myndast óafturkallanlegt og stjómarskrárvarið forræði einstakra aðila yfir auðlindinni.25 Og um þetta sagði þáverandi sjávarútvegsráðherra í framsöguræðu sinni, er hann fylgdi frumvapi til laganna úr hlaði: Ótímabundin lög em hið almenna form löggjafar á íslandi og þarfnast í sjálfu sér ekki skýringar. Með því er sköpuð meiri festa og aðilum skapaðar forsendur til að vinna eftir. Alþingi ætti þó ekki með þessu á nokkum hátt að binda hendur sínar til frambúðar. Alþingi er með þessu á engan hátt að veita einstökum útgerðum óaft- urkallanlegt og stjómarskrárvarið forræði yfir fiskistofnunum, eins og fram kemur í athugasemdum við 1. gr. frv. Það hlýtur að vera ákvörðun Alþingis á hverjum tíma, hvaða skipulag teljist best henta til að nýta fiskistofnana með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.26 Telja verður, að fyrirvari þessi í fiskveiðistjómunarlögunum hafi í fyrsta lagi þau áhrif, að lögin verða miklu síður skilin á þann veg, að með þeim hafi verið stofnað til stjórnarskrárvarins eignarréttar einstakra manna yfir veiðiheim- ildum. Að þýðingu þessa verður nánar vikið síðar. I öðru lagi getur þessi yfir- lýsing haft gildi sem leiðbeining um það, hvemig skýra skal önnur ákvæði lag- anna og jafnvel ákvæði annarra laga. I fyrirvaranum felast þess vegna skilaboð 25 Alþt. 1989-1990, A, þskj. 609, bls. 2547. 26 Alþt. 1989-1990, Umræður, d. 3811. 51

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.