Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Side 81

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Side 81
2.3 Sérdómstólar I sérdómstólum koma til úrlausnar mál frá ólíkum sviðum samfélagsins. Sér- dómstólar hafa verið settir á fót þar sem ákveðin þörf hefur legið fyrir um sér- staka fagþekkingu til þess að leiða til lykta ágreiningsmál innan vissra réttar- sviða. Fáein dæmi um sænska sérdómstóla eru Vinnudómstóllinn (Arbetsdom- stolen), Markaðsdómstóllinn (Marknadsdomstolen), sjö sjóréttardómstólar, að ógleymdum hinum sex vatnadómstólum sem m.a. skera úr ágreiningi um rétt- indi yfir vatni og rétt til byggingar mannvirkja við vötn og í vötnum. Dómum nokkurra sérdómstólanna, svo sem vinnudómstólsins og markaðsdómstólsins verður ekki áfrýjað. 2.4 Dómstólaráð Stjómsýsla almennu dómstólanna og almennu stjómsýsludómstólanna er í höndum dómstólaráðs, (Domstolsverket). I ráðinu sitja 10 meðlimir og velur ríkisstjómin einn til að vera formann ráðsins. Hlutverk dómstólaráðsins er að vera ráðgefandi og leiðbeinandi fyrir dómstólana, samhæfa starfsemi þeirra og gæta þess að dómstólamir starfi á ömggan og áhrifarrkan hátt. í reglugerð um Domstolsverket er sérstaklega tekið fram að með tilliti til þess sjálfstæðis sem dómstólum sé tryggt samkvæmt stjómarskrá sé ekki í þess verkahring að ákvarða á nokkum hátt hvemig deila eigi verkefnum milli einstakra dómara og er gert ráð fyrir að dómstólamir sjálfir séu alveg óháðir dómstólaráði í dómsúr- lausnum sínum. Hér má geta þess sérstaklega, vegna ákvæða í framkomnu frumvarpi til dóm- stólalaga hér á landi um að flytja megi íslenska dómara gegn vilja þeirra á milli dómstóla, að í Svíþjóð er litið á það sem hluta af sjálfstæði dómara að þeir verði ekki fluttir milli staða mót vilja þeirra, nema því aðeins að nauðsynlegt sé af skipulagsástæðum og þá aðeins til staðar sem sambærilegur er þeim sem þeir flytjast frá. 3. DÓMARAR 3.1 Embættisdómarar og leikmannadómendur Frá fomu fari réð sú skipan í Svíþjóð að körlum úr bændastétt var falið að taka virkan þátt í meðferð dómsvaldsins og valdi dómarinn þá sem honum leist á til þess, en síðar breyttist sú tilhögun og málsaðilar fengu sjálfir að skipa dóm. Gildir sú gróna hefð enn að óbreyttum borgurum er falið að fara með stóran hluta dómsvalds og það jafnt konum sem körlum, en sú breyting hefur orðið á, að nú eru þeir valdir pólitískt innan sérhvers sveitarfélags. Þessir leikmanna- dómendur em kallaðir námndemán og taka virkan þátt í störfum undirrétta og millidómstóla. Við hina 97 undirréttardómstóla í Svíþjóð starfa 6000 leik- mannadómendur og 1000 leikmannadómendur starfa í tengslum við hina 24 lénsrétti Svíþjóðar. Nokkru færri leikmannadómendur starfa við millidómstól- ana, en einvörðungu embættisdómendur dæma við æðstu dómstigin, Högsta domstolen og Regeringsrátten. 75

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.