Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Blaðsíða 11
(2) Svokallaður skyldulisti7 er ekki að öllu leyti sambærilegur í viðkomandi
löggjöf Norðurlandanna.
(3) Loks má nefna að umhverfisaðstæður eru mismunandi á Norðurlöndum
og erfitt og e.t.v. markleysa ein að bera saman niðurstöður mats á umhverfis-
áhrifum þótt áhrif sambærilegra framkvæmda hafi verið metin eða draga miklar
ályktanir af fjölda, t.d. fjölda stjómsýslukæra eða dómsmála, því sambærilegar
framkvæmdir geta að sjálfsögðu haft í för með sér mismunandi umhverfis-
áhrif.8
2. VÍTT OG BREITT UM MAT Á UMHVERFISÁHRIFUM
2.1 Þróunin í Bandaríkjunum
Kerfisbundið mat á umhverfisáhrifum stefnumarkandi áætlana, þ.m.t. fmm-
vörpum til laga, og framkvæmda áður en þær eru samþykktar eða heimilaðar á
sér rúmlega þriggja áratuga sögu og hófst gerð slrkra mata í Bandaríkjunum í
samræmi við bandarísku NEPA lögin (National Environmental Policy Act) frá
1969 og þau markmið og almennu lagasjónarmið sem þau innihalda og varða
mat á umhverfisáhrifum, sbr. einkum 101.-102. gr. laganna.9 Lögin gilda fyrst
og fremst um umfangsmiklar framkvæmdir á vegum sambandsstjómarinnar10
sem framkvæma á innan ríkja Bandaríkjanna og eru taldar hafa í för með sér
umtalsverð umhverfisáhrif. Um helmingur ríkja Bandaríkjanna hefur samþykkt
samsvarandi löggjöf vegna framkvæmda sem em á vegum annaira aðila en
sambandsstjómarinnar, t.d. á vegum ríkisstjóma einstakra ríkja Bandaríkj-
anna.11
I (c) lið 2. mgr. 102. gr. NEPA laganna koma fram þau meginatriði sem mat
á umhverfisáhrifum (matsskýrsla) á að ná til. Þetta em í stórum dráttum upp-
lýsingar um:
7 Hér er átt við viðauka I með tilskipun 97/11/EB.
8 Athuganir C. Wood á löggjöf og meðferð mála sem varða mat á umhverfisáhrifum í Bandaríkj-
unum, Bretlandi, Nýja Sjálandi, Astralíu. Kanada, Hollandi og samkvæmt tilskipun 85/337/EBE
leiða í ljós að Iöggjöf og framkvæmd mats á umhverfisáhrifum, þ.m.t. málsmeðferð, er afar mis-
munandi í þessum löndum. Jafnframt er málsmeðferð vegna leyfisveitinga fjölbreytt, t.d. er í sum-
um löndum ekki fyrir að fara formlegri málsmeðferð og hjá öðrum er ferill skipulagsáætlana not-
aður. Sjá nánari umfjöllun hjá C. Wood í Environmental Impact Assessment A Comparative
Review. Longman Group Limited, England 1995.
9 í (c) lið 2. mgr. 102. gr. NEPA laganna segir: „all agencies of the Federal Government shall... (c)
include in every recommendation or report on proposals for legislation and other major Federal
actions significantly affecting the quality of the human environment, a detailed statement ..." Sjá
nánari umfjöllun hjá t.d. C. Wood, bls. 1, et seq., og 2. kafla, svo og „Programmatic and Strategic
Environmental Impact Assessments - Concepts, Development, Pitfalls and Possibilities". Nordic
Council of Ministers, TemaNord 1996:589, ritstjóri og aðalhöfundur I. Carlman. bls. 9-14, og bls.
18, et seq.
10 A ensku: Federal Govemment.
11 C. Wood, bls. 3 og 26.
159