Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 32

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 32
Hæstaréttar um að engar efnisreglur væru í 6. gr. sé ekki rétt og að ákveðið samspil sé á milli 1. og 6. gr. laganna. Hins vegar sé efnisregla 6. gr. laga nr. 63/1993 matskennd.79 Er tekið undir þessa gagnrýni hér. Þegar dómur Hæsta- réttar var kveðinn upp var frumvarp það sem varð að núgildandi lögum um mat á umhverfisáhrifum til meðferðar hjá umhverfisnefnd Alþingis. Vegna niðurstöðu dómsins var 7. gr. frumvarpsins (nú 7. gr. gildandi laga), sem er sambærileg 6. gr. þágildandi laga nr. 63/1993, breytt á þann hátt að við mat á því hvort framkvæmd sé háð mati á umhverfisáhrifum skal hafa hliðsjón af 3. viðauka með lögunum og setja á fyrirmæli í reglugerð er komi í stað einstakra ákvarðana.80 Hins vegar er óljóst hvemig beita á þeim sjónarmiðum sem fram koma í 3. viðauka eins og vikið var að í kafla 6.1. Af tilvitnuðum dómi Hæstaréttar rná ráða að skylda til þess að meta umhverfisáhrif sé íþyngjandi fyrir framkvæmdaraðila og eftir atvikum landeiganda. Oljóst er hins vegar hvort mögulegt er að draga frekari ályktanir af dóminum og verður vikið að því í 7. kafla. Með hliðsjón af framangreindu og þeirri staðreynd að afar sjaldan hefur verið staðfest að framkvæmdir hafi í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif er e.t.v. ekki réttlætanlegt að leggja þá skyldu á framkvæmdaraðila að sæta mati á umhverfisáhrifum í svo ríkum mæli sem raun hefur verið og að viðhalda dýru og tímafreku matsferli sem sjaldan staðfestir umtalsverð umhverfisáhrif. En hafa verður hugfast að sé um að ræða framkvæmdir sem meta skal í samræmi við alþjóðlega samninga sem Island er aðili að, svo sem EES-samninginn, er ekkert val. Þetta leiðir hugann að næsta atriði. 7. AÐ FALLAST Á FRAMKVÆMD EÐA EKKI - LEYFI TIL FRAMKVÆMDAR 7.1 Úrskurður Skipulagsstofnunar Skoðum næst orðalag 2. mgr. 11. gr. gildandi laga um mat á umhverfisáhrif- um og sambærilegt orðalag í eldri lögum. í eldri lögum um mat á umhverfisáhrifum sagði í 1. mgr. 8. gr. ... skal hann [skipulagsstjóri] kveða upp rökstuddan úrskurð um það hvort: a. fallist er á viðkomandi framkvæmd, með eða án skilyrða, b. ráðist skuli í frekara mat á umhverfisáhrifum Og í 1. mgr. 11. gr. sagði: ... í úrskurði felst að: a. fallist er á viðkomandi framkvæmd, með eða án skilyrða, b. krafa er gerð um frekari könnun einstakra þátta eða c. lagst er gegn viðkomandi framkvæmd. 79 Sjá umfjöllun í grein Páls Hreinssonar: „Lagaáskilnaðarregla atvinnufrelsisákvæðis stjórnar- skrárinnar" í afmælisriti til heiðurs Sigurði Líndal. 80 Alþt. 1999-2000, A-deild, þskj. 1280, bls. 3647. 180
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.