Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 39

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 39
Ef svo væri fælist hugsanleg röskun á eignarráðum og atvinnufrelsi í stórum dráttum í þeim tíma sem mat á umhverfisáhrifum tekur og í þeim kostnaði sem framkvæmdaraðili þarf að bera vegna matsins. Hins vegar er óvarlegt að draga þá almennu ályktun af dóminum að niðurstaða úrskurðar um mat á um- hverfisáhrifum bindi leyfisveitanda. Telja verður að réttaróvissa geti ríkt hvað þetta atriði varðar nema viðkomandi lög97 sem leyfisveitendur byggja leyfi sín á innihaldi skýr ákvæði um að leyfisveitanda beri að fara eftir niðurstöðu þeirri sem kemur fram í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum.98 7.3 Skilyrði í úrskurði og efni leyfis Nú verður vikið að skilyrðum sem oft er að finna í úrskurði um mat á um- hverfisáhrifum. Þegar úrskurðir Skipulagsstofnunar og umhverfisráðuneytis eru skoðaðir kemur m.a. í Ijós að margir þeirra innihalda ítarleg skilyrði, t.d. US 3/96, álver á Grundartanga. í þeim úrskurði var fallist á byggingu fyrsta áfanga álvers með 60.000 tonna ársframleiðslu og annars áfanga með stækkun í allt að 180.000 tonna ársframleiðslu, ásamt hafnarmannvirkjum og háspennulínu eins og lýst var í matsskýrslu. ítarleg skilyrði voru sett í úrskurðinum og verður hér nokkurra getið. í fyrsta lagi (1) var óheimilt að hefja framkvæmdir við hvorn áfanga fyrir sig fyrr en gerð hefði verið fullnægjandi grein fyrir matsskyldum, tengdum framkvæmdum, svo sem virkjunarframkvæmdum. í öðru lagi (2) var sett það skilyrði að óheimilt væri að rýmka mengunarmörk í starfsleyfi fyrir rekstur álversins og fleiri skilyrði sem tengdust efni þess (útgefandi starfsleyfis er Hollustuvernd ríkisins). Loks var tekið fram (3) að óheimilt væri að hefja framkvæmdir við 180.000 tonna álver ef sýnt þætti að vöktun á rekstrartíma 1. áfanga leiddi í ljós að forsendur og áætlanir hvað varðaði mengun frá álverinu, og kynntar voru í frummatsskýrslu, stæðust ekki. Þessum úrskurði var skotið til umhverfisráðherra, sbr. ÚR 20/6/96. Þess var krafist að úrskurður skipulags- stjóra yrði felldur úr gildi og að fram færi frekara mat á umhverfisáhrifum 97 Nokkur dæmi má finna í lögum sem varða leyfisveitingar fyrir framkvæmdum sem háðar eru mati á umhverfisáhrifum og innihalda jafnframt tengingu við mat á þeim. Slík tenging er t.d. í 27. gr. skipulags- og byggingarlaga en þar segir í 1. ml. 1. mgr.: „Meiri háttar framkvæmdir, sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem breyting lands með jarðvegi eða efnistöku, skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir og úrskurð um mat á umhverfisáhrifum þar sem það á við“. Einnig má benda á 3. mgr. 1. gr. laga nr. 60/1981 um raforkuver, sbr. lög nr. 48/1999, þar sem segir að veiting leyfa fyrir tilteknum virkjunum sé háð niðurstöðum mats á umhverfisáhrifum og að ráðherra (iðnaðar- ráðherra) geti sett nánari skilyrði í virkjunarleyfi. Jafnframt segir í 2. mgr. 4. gr. laga nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbomsins, sbr. 4. gr. laga nr. 101/2000, að við veitingu leyfa samkvæmt lögunum skuli gæta ákvæða laga um mat á umhverfisáhrifum. Loks er bent á 34. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvemd. f þeirri grein segir að meiri háttar framkvæmdir sem áhrif hafa á umhverfið og breyti ásýnd þess, svo sem breyting lands með jarðvegi eða efnistöku, skuli vera í samræmi við skipulagsáætlanir og úrskurð um mat á umhverfisáhrifum þar sem það á við. 98 Sjá einnig sératkvæðið í Stjömugrísmálinu fyrra þar sem segir: „Hins vegar fela lögin [63/1993] ekki í sér bein fyrirmæli þess efnis, að synja skuli um leyfi til framkvæmdanna, ef matið þykir mæla á móti þeim fremur en með“. 187
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.