Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 42
ákveðnar réttmætar væntingar.102 Velta má því fyrir sér hver réttarstaðan verður
ef lagst er gegn framkvæmd vegna umtalsverðra umhverfisáhrifa en leyfi til
framkvæmda samt sem áður gefið út. Er þá hugsanlegt að halda því fram í
dómsmáli að framkvæmdin sé óheimil vegna þess að umhverfisáhrifin eru met-
in umtalsverð? Eða - á framkvæmdaraðili skilyrðislausan rétt til þess að fá út-
gefið leyfi til framkvæmda ef komist er að þeirri niðurstöðu að umhverf-
isáhrifin verði ekki umtalsverð og fallist á framkvæmd af Skipulagsstofnun?
Eða - getur framkvæmdaraðili vænst þess að fá útgefið leyfi til framkvæmdar
ef lagst er gegn framkvæmd vegna umtalsverðra umhverfisáhrifa? Hvaða rétt á
almenningur? A þennan hátt má sjálfsagt halda áfram lengi.
8. MÓTVÆGISAÐGERÐIR, FYRIRBYGGJANDI AÐGERÐIR OG
ÁVINNINGUR
8.1 Almennt um mótvægisaðgerðir og fyrirbyggjandi aðgerðir
Eins og vikið var að í kafla 4.2 eru mótvægisaðgerðir skilgreindar á eftirfar-
andi hátt í i lið 3. gr. laga nr. 106/2000: „Aðgerðir til að koma í veg fyrir, draga
úr eða bæta fyrir neikvæð umhverfisáhrif‘. í j lið 3. gr. reglugerðar nr. 671/2000
um mat á umhverfisáhrifum er nánast sömu skilgreiningu að finna. Þó eru orðin
„eða bæta fyrir“ ekki í j lið 3. gr. reglugerðarinnar en þar segir „eða ráða bót á“.
Ekki er að fullu ljóst hvað við er átt með þessum skilgreiningum oj* engar skýr-
ingar er að finna í frumvarpi því er varð að tilvitnuðum lögum. í athugasemd
við 3. gr. frumvarpsins segir að stuðst hafi verið við skýringar þær sem koma
fram í tilskipun 85/337/EBE og tilskipun 97/11/EB.103
Hvorki í tilskipun 85/337/EBE né í tilskipun 97/11/EB er að finna nákvæmar
skýringar á mótvægisaðgerðum. Hins vegar kemur fram í lið 7.3 í 1. gr. til-
skipunar 97/11/EB sem breytir 2. mgr. 5. gr. tilskipunar 85/337/EBE og í lið 5
í viðauka IV með tilskipun 97/11/EB,104 að framkvæmdaraðila beri að leggja
fram upplýsingar sem varða lýsingu á ráðstöfunum sem gerðar verði til að
koma í veg fyrir, draga úr og, ef hægt er, vega á móti alvarlegri umhverfisrösk-
un.105 Sjá nánar 9. gr. laga nr. 106/2000 um efni matsskýrslu. Vakin er þó at-
hygli á að í ÚS 7/01 segir:
... með tilvísun í lög og reglugerð um mat á umhverfisáhrifum, [skal leitast] við að
bæta fyrir allt tjón sem framkvæmdir kunna að hafa í för með sér þrátt fyrir að
fullljóst sé að þær aðgerðir vegi í fæstum tilfellum að fullu upp á móti hinum
102 Skýrt skal tekið fram að sjónarmið um réttmætar væntingar eru í örri þróun og lítið hefur verið
fjallað um þau í íslenskum sjómsýslurétti. Jafnframt er undirstrikað að óljóst er hvaða áhrif rétt-
mætar væntingar hafa eða geta haft í íslenskum rétti.
103 Alþt. 1999-2000, A-deild, þskj. 644, bls. 3483.
104 Þessi liður er samhljóða lið 5 í viðauka 111 með tilskipun 85/337/EBE.
105 A ensku segir í lið 5 í viðauka IV: „A description of the measures envisaged to prevent, reduce
and where possible offset any significant adverse effects on the environment“.
190