Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 67

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 67
unar o.fl. Hafi fyrirtæki trú á að vextir muni lækka má nota vaxtaskiptasamn- inga til að breyta föstum vöxtum af tilteknu láni í breytilega vexti og öfugt ef útlit er fyrir að þeir muni hækka. Vaxtaskiptasamningar eru oftast til tiltölulega langs tíma. Fimm ára samningstími með hálfsársuppgjöri er t.d. ekki óalgengt. Dæmi 7. Vaxtaskiptasamningur (rentefuture). A fær 1.000.000 kr. að láni hjá Fjárfestingarfélaginu X hf. Vextir af láninu em 9,5% fastir vextir. Er A tók lánið var verðbólga 4,5% en hún hefur síðan lækkað í 2% og er gert ráð fyrir að hún verði þannig næsta ár. Þetta hefur haft þau áhrif að vextir af sambærilegum lánum og A tók hafa lækkað í 7,5%. Af þeim sökum leitar A nú þeirra ráða að breyta vaxtakjörum lánsins í breytilega vexti + 2% og gerir því vaxtaskiptasamning við bankann B um að hann greiði föstu vextina gegn því að A greiði bankanum breytilega vexti + 2% af 1.000.000 kr. höfuðstól. Skematískt má sýna þetta þannig: Þeir vextir, sem A hf. þarf að greiða Fjárfestingarfélaginu X hf., eru því greiddir af bankanum en af því leiðir að raunveruleg vaxtagreiðsla A hf. af láninu eru breytilegir vextir + 2%. Séu breytilegir vextir 6% sparar A hf. sér þar af leiðandi um 1,5% vaxtamun af láninu sem í þessu tilviki er reyndar ekki nema 15.000 kr. en getur verið mun hærri fjárhæð ef lánið er hátt. Við gerð vaxtaskiptasamnings er að jafnaði samið um það að fjárstraumamir, sem aðilar verða sammála um að skiptast á gjaldfalli á sama tíma, t.d. 1. mars og 1. sept. Er straumunum þá jafnað hvorum á móti öðrum þannig að aðeins sá aðili, sem lendir í nettó-greiðslustöðu, þarf að greiða. Fyrir kemur þó að greiðslu- straumamir em látnir gjaldfalla á mismunandi tímum og skiptir jöfnun þá minna máli. Aðilar kunna t.d. að semja þannig að annar viðsemjandi skuli gera upp sinn fjárstraum reglulega ársfjórðungslega en hinn einu sinni á ári. Einnig geta aðilar samið þannig að annar viðsemjandi skuli greiða eingreiðslu í upphafi eða lok samningstímans en hinn reglulega. Ekkert er þess vegna því til fyrirstöðu að viðsemjendur hagi uppgjörinu þannig að sem best henti hagsmunum þeirra. Við gjaldmiðlaskiptasamninga semja aðilar um að skiptast á erlendum gjaldmiðli í tiltekinn tíma. Að þeim tíma loknum ber hvorum aðila um sig að skila hinum sama gjaldmiðli og hann fékk að láni. Vegna þessa er gengisáhætta af völdum gjaldmiðlaskiptasamninga engin. Hins vegar getur aðili þurft að 215
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.